Dagur íslenska hestsins

  • 1. maí 2026
  • Fréttir
Í kínverskri stjörnuspeki ríkir nú ár Eld-Hestsins

Í dag, þann 1. maí, er ekki eingöngu baráttudagur verkafólks heldur einnig alþjóðlegur dagur íslenska hestsins. Honum er fagnað víða um heim þar sem íslenski hesturinn hefur sigrað þjóðir og álfur og markað spor í hin ýmsu samfélög.

Því er gott að njóta dagsins í dag með góðum útreiðatúr, samveru með hestum okkar og hugsa til allra þeirra hesta sem áhrif hafa haft á líf okkar.

Við það tækifæri er einnig ekki úr vegi að hugsa til þess að samkvæmt kínverskri stjörnuspeki er núna ár Eld-hestsins. Í þeirri speki er hesturinn tákn um hraða, frelsi og sjálfstæði. Í tilefni þess er hér að neðan hið kröftuga ljóð um eðli hestsins sem greinarhöfundi þótti við hæfi að rifja upp á degi íslenska hestsins:

 

Ég er kviksjá hugans.
Ég leysi í sundur ljós, liti og eilífðarhreyfingu.
Ég hugsa, ég sé, ég hreyfist með rafmögnuðum þokka.
Stöðugur aðeins í breytileika mínum er ég ófjötraður af jarðneskum gildum.
Hömlulaus af kröftugum markmiðum.
Ég hleyp óhindraður um ótroðnar slóðir.
Andi minn er ósigraður – sál mín frjáls að eilífu.

Ég er hesturinn.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link