Dalla frá Auðsholtshjáleigu er hryssa ársins í Danmörku
Hryssan Dalla frá Auðsholtshjáleigu var nýverið kosin hryssa ársins í Danmörku af Dansk Islandshest Forening, en þetta kemur fram á Facebooksíðu Auðsholtshjáleigu.
Dalla er fædd 1999, undan Þór frá Prestsbakka og Gyllingu frá Hafnarfirði. Hún hlaut sinn hæsta kynbótadóm – 8,04 – á Landsmóti á Hellu 2004 og var seld utan það sama ár. Dalla hefur eignast 14 skráð afkvæmi og hafa 5 þeirra hlotið fullnaðardóm. Dalla hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi í Danmörku á árinu og segir m.a. í dómsorðum að afkvæmi hennar séu myndarleg með góð gangskil og fari vel. Meðaltalseinkunn sýndra afkvæma er 8,17 fyrir sköpulag, 8,12 fyrir hæfileika og 8,13 í aðaleinkunn.
Eiðfaxi óskar ræktendum og eigendum Döllu til hamingju með árangurinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH