Kynbótasýningar Dalvar jafnar heimsmet Viðars

  • 15. júní 2026
  • Fréttir
Dalvar frá Efsta-Seli jafnar hæsta kynbótadóm frá upphafi dóma

Dalvar frá Efsta-Seli var sýndur í dag á vorsýningu á Rangárbökkum og hlaut hann í aðaleinkunn 9,04 sem er jöfn hæstu einkunn sem hross hefur hlotið í kynbótadómi. Jafnad hann dóm Viðars frá Skör sem hlaut 9.04 í aðaleinkunn á vorsýningu 2022.

Dalvar hlaut fyrir sköpulag 9.06 og fyrir hæfileika 9.02 sem gerir 9.04 í aðaleinkunn. Hann hlaut m.a. 9,5 fyrir fótagerð, hófa, prúðleika, skeið og samstarfsvilja og 9,0 fyrir háls/herðar og bóga, bak og lend, samræmi, tölt, brokk, fet og fegurð í reið.

Það var Daníel Jónsson sem sýndi hestinn en Efsta-Sel ehf. er eigandi og Daníel Jónsson og Hilmar Sæmundsson eru ræktendur.

Dalvar er undan Adrían frá Garðshorni á Þelamörk og Lóu frá Efsta-Seli. Dalvar stóð efstur í flokki fjögurra vetra stóðhesta á Landsmótinu í Reykjavík 2024 og varð hæst dæmda fimm vetra hross frá upphafi í fyrra. Met sem Tinni frá Árdal á nú.

Hér fyrir neðan er dómurinn hans Dalvars frá því í dag en yfirlit er á föstudaginn

IS2020186644 Dalvar frá Efsta-Seli
Örmerki: 352098100103710
Litur: 25000 Brúnn
Ræktandi: Daníel Jónsson, Hilmar Sæmundsson
Eigandi: EfstaSel ehf
F.: IS2013164067 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk
Ff.: IS1997158469 Hágangur frá Narfastöðum
Fm.: IS1994238714 Elding frá Lambanesi
M.: IS2015286645 Lóa frá Efsta-Seli
Mf.: IS2007186189 Arion frá Eystra-Fróðholti
Mm.: IS1999286988 Lady frá Neðra-Seli
Mál (cm): 152 – 140 – 142 – 68 – 141 – 40 – 48 – 43 – 7,0 – 31,0 – 20,0
Hófa mál: V.fr.: 9,4 – V.a.: 8,1
Sköpulag: 8,5 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 9,5 – 8,0 – 9,5 – 9,5 = 9,06
Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 9,5 – 8,0 – 8,0 – 9,5 – 9,0 – 9,0 = 9,02
Hægt tölt: 8,5

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link