Daníel knapi ársins
Vel heppnuð uppskeruhátíð Geysis fór fram síðastliðin laugardag þar sem margt var um manninn. Ágúst Sigurðson var veislustjóri og hlaðborðið var hrossakjöt af öllum sortum að hætti Hellisbúans. Hljómsveitin SóFar spilaði fyrir dansi. Mikil gleði var og stóð dansleikurinn langt fram á nótt. Margar viðurkenningar voru veittar ásamt farandbikurum.
Þeir Geysisfélagar sem komust í A-úrslit á LM 2014 fengu ostakörfu:
Steingrímur Sigurðsson Gróði frá Naustum
Sigurður Sigurðarson Dreyri frá Hjaltastöðum
Róbert Bergmann Brynja frá Bakkakoti
Guðmunda Ellen Sigurðardóttir Tindur frá Heiði
Sigurlín F Arnarsdóttir Reykur frá Herríðarhóli
Einnig þeir sem hafa verið duglegir í félagsstörfunum
Valsteinn Stefánsson
Birgir Ægir Kristjánsson
Herríðarhóll fékk viðurkenningarplatta fyrir Storm frá Herríðarhóli sem er þrefaldur Íslandsmeistari í tölti og vann einnig tölt á LM 2014.
Eigendur Orku frá Hvolsvelli fengu einnig viðurkenningarplatta en Orka á 10 sýnd afkvæmi og 8 af þeim eru í 1.verðlaunum.
Róbert Bergmann fékk viðurkenningarplatta en hann var Íslandsmeistari í tölti ungmenna 2014
Farandbikarar:
Knapi Ársins
Daníel Jónsson
Skeiðskálin
Davíð Jónsson
Íþróttabikarinn
Sigurður Sigurðarson
Geysisbikarinn (gæðingaknapi)
Steingrímur Sigurðson
Stóðhestabikarinn
Aríon frá Eystra-Fróðholti
Hryssubikarinn
Blíða frá Litlu-Tungu
Ræktunarbú
Fet
Mjölnisbikarinn
Sigurður Sigurðarson Dreyri frá Hjaltastöðum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH