Dóttir geimfarans í starfsnámi á Íslandi
„Íslenski geimfarinn Bjarni Tryggvason kom til landsins í lok júlí til að sækja dóttur sína, Lauren Tryggvason sem dvalið hafði á Vatnsleysu í Skagafirði hjá þeim Birni og Arndísi í tvær vikur. Lauren er nemandi við dýralækningar í Royal Veterinary College í London, Bretlandi og þurfti að velja sér stað til að við vera við starfsnám í 2 vikur í sumar. Vegna áhuga hennar á hestum og uppruna föður hennar, var ákveðið að kynnast íslenskri hrossarækt og starfsemi á slíku búi. Á Vatnsleysu hefur verið stunduð markviss hrossarækt í áratugi, en á bakvið hvern einstakling þar er 45 ára ræktunarstarf.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV