Dregið í rásröð í Meistaradeild Líflands
Eyrún Ýr vann einstaklingskeppnina í Meistaradeildinni í fyrra Mynd: Carolin Giese
Það stefnir í æsispennandi lokakvöld í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum á morgun þegar keppt verður í tölti og flugskeið.
Eftir harða keppni vetrarins er ljóst að baráttan um liðatitilinn stendur á milli tveggja liða sem hafa skipst á að sýna yfirburði á tímabilinu. Örfá stig skilja að efstu knapa svo það stefnir í hádramatískt lokakvöld.
Keppni hefst kl. 19:00 á morgun, föstudag. Keppnin fer fram í HorseDay höllinni á Ingólfshvoli. Fyrir þá sem ekki eiga heimangengt geta horft á keppnina í beinni útsendingu á Eiðfaxa TV en það er um að gera að tryggja sér áskrift sem fyrst.
Hér fyrir neðan getur fylgst með þegar dregið verður í rásröð fyrir lokakvöldið og þá sjáum við hvaða hesta knapar deildarinnar mæta með á morgun. Hægt verður að horfa í opinni dagskrá á vef Eiðfaxa og á EiðfaxaTV.
Dregið í rásröð í Meistaradeild Líflands
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Þórunn bar sigur úr býtum
Agnar og Kvistur á nýju hallarmeti
Öskufljót og flink skeiðhross í 1.deild Hringdu