Dregur sig úr landsliðinu

  • 13. júlí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Fréttatilkynning frá Sigurði Sigurðarssyni

Þjóðólfshaga 1, 13. júlí 2015
„Ég, Sigurður Sigurðarson, hef ákveðið að vel íhuguðu máli að óska eftir því að draga mig út úr íslenska landsliðinu í hestaíþróttum með hryssuna Örnu frá Skipaskaga. 

Ástæða þess er sú, að Arna hefur einungis farið í örfáar töltkeppnir og tel ég að hún þurfi meiri keppnisreynslu til að fá það öryggi sem þarf til að fara á heimsmeistaramót og mæta hestum með margra ára reynslu í töltkeppni. Hæfileikar hennar eru ótvíræðir og gæti hún kannski orðið ennþá betri kostur fyrir íslenska landsliðið að tveimur árum liðnum. Þessi ákvörðun er tekin í mjög góðu samráði við landsliðseinvaldinn Pál Braga Hólmarsson og eigendur hryssunnar þau Jón Árnason og Sigurveigu Stefánsdóttur. 

Ég tel að íslenska landsliðið sé með mjög öfluga einstaklinga innanborðs sem geta náð mjög langt. Ef ég get orðið landsliðinu styrkur að einhverju öðru leyti þá er ég meira en boðinn og búinn til þess. „
Með kærri kveðju,
Sigurður Sigurðarson
Þjóðólfshaga

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link