Svíþjóð Drífandi og Bella hæst dæmd á Romme

  • 29. maí 2026
  • Fréttir

Verðlaunaafhending í flokki hryssa á Romme

54 hross sýnd á Romme í Svíþjóð

Kynbótasýningu í Romme í Svíþjóð lauk nú í morgun með yfirlitssýningu. 47 hross voru sýnd í fullnaðardómi og 7 til viðbótar eingöngu í sköpulagi. Dómarar á sýningunni voru þau Sveinn Ragnarsson, Elsa Mandal Hreggviðsdóttir og Silke Feuchthofen.

EiðfaxiTV var á staðnum og tók allar sýningar upp en vænta má allra myndbanda frá henni á streymisveituna innan skamms.

Drífandi og Bella hæst dæmd

Það hross sem hæsta aðaleinkunn hlaut á sýningunni var alhliðahesturinn Drífandi frá Sauðárkróki. Hann er sex vetra gamall leirljós tvístjörnóttur að lita undan Draupni frá Stuðlum og Sædögg frá Sauðárkróki. Ræktendur eru Sauðárkrókshestar og Silke Bartel. Eigandi hennar er Carolina Jurstedt en það var Máni Hilmarsson sem sýndi Drífanda. Hlaut hann fyrir sköpulag 8,45 með jafnar og góðar einkunnir í þar sem hæst bar 9,0 fyrir hófa og prúðleika. Í hæfileikadómi hlaut hann 8,37 þar sem hæst bar 9,0 fyrir brokk. Aðaleinkunn hans er 8,40

Hæst dæmda hryssan á sýningunni er sex vetra gömul klárhryssa er heitir Bella från Segersgården. Hún er móbrún að lita undan Fim frá Selfossi og Björk frá Enni. Ræktendur eru Erlingur Erlingsson og Antonia Hardwick en eigendur eru Beatrixe Evertsson og Victoria Gulbrandsen Evertsson, sýnandi var Erlingur Erlingsson. Hlaut hún 8,22 fyrir sköpulag með m.a. 9,0 fyrir háls, herðar og bóga. Fyrir hæfileika hlaut hún 8,27 og þar af 9,5 fyrir fegurð í reið og 9,0 fyrir tölt, brokk, samstarfsvilja og hægt tölt. Aðaleinkunn hennar er 8,25.

Hross dæmd á Romme raðað eftir aðaleinkunn
Hross á þessu móti Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn Sýnandi Þjálfari
IS2020157005 Drífandi frá Sauðárkróki 8.45 8.37 8.4 Máni Hilmarsson
SE2020211019 Bella från Segersgården 8.22 8.27 8.25 Erlingur Erlingsson
SE2019124015 Þrumufleygur från Gunvarbyn 8.84 7.76 8.14 Máni Hilmarsson
SE2020213011 Oktavía från From 8.39 7.92 8.08 Daníel Ingi Smárason
SE2020227003 Von från Prästgården 8.16 7.99 8.05 Máni Hilmarsson
NO2020206146 Kúnst fra Stall TL 8.34 7.88 8.05 Erlingur Erlingsson
IS2021164226 Sólbjartur frá Finnastöðum 8.56 7.69 8 Máni Hilmarsson
IS2016135806 Þróttur frá Skáney 8.56 7.68 7.99 Jamila Berg
SE2020224989 Ásta Sóllilja från Gunvarbyn 8.46 7.7 7.97 Máni Hilmarsson
SE2020230998 Gréta från Djusa 8.26 7.81 7.97 Daníel Ingi Smárason
SE2020214001 Svala från Oxhagen 7.91 7.95 7.93 Máni Hilmarsson Carolina Jurstedt
IS2017158163 Tími frá Þúfum 8.38 7.68 7.93 Erlingur Erlingsson
SE2021113011 Auður från Agersta 8.25 7.75 7.92 Erlingur Erlingsson
SE2020227011 Dalrós från Forsnäs 8.11 7.8 7.91 Máni Hilmarsson
SE2021111999 Sómi från Ekeby 8.16 7.77 7.91 Berglind Rósa Guðmundsdóttir
SE2021224012 Lind från Lilla Sträckås 8.04 7.7 7.82 Erlingur Erlingsson
IS2019156465 Herbert frá Hæli 8.11 7.65 7.82 Máni Hilmarsson
SE2021111027 Vals från Mån 8.05 7.68 7.81 Robin Haraldsen
SE2020211002 Vild från Frihamra 8.41 7.41 7.76 Erlingur Erlingsson
IS2019236317 Gljádís frá Borgarnesi 7.58 7.85 7.76 Máni Hilmarsson
SE2022114000 Flaumur från Rosöga 7.87 7.68 7.75 Erlingur Erlingsson Kelly Eriksson
NO2020104177 Anton fra Østgården 8.04 7.55 7.72 Erlingur Erlingsson
IS2016156293 Léttir frá Steinnesi 7.92 7.58 7.7 Klara Nydahl
SE2021233005 Viðun från Valne Gård 7.89 7.6 7.7 Gudmundur Einarsson Dagbjört Hrund Hjaltadóttir
SE2020230010 Sigríður från Långsjö 7.96 7.55 7.7 Gardar Gislason
SE2020211996 Lind från Lindhof 8.06 7.48 7.69 Elsa Teverud
SE2021218005 Klara från Gunnarsbo 8.29 7.35 7.68 Máni Hilmarsson
SE2018213012 Barbara från Snäcksjön 8.21 7.38 7.67 Erlingur Erlingsson
NO2022104298 Feykir fra Østgården 8.07 7.45 7.67 Erlingur Erlingsson
SE2021211012 Djásn från Artinge 7.96 7.51 7.67 Anne-Marie Röst
IS2020281419 Valhöll frá Fákshólum 8.05 7.42 7.64 Elsa Teverud
SE2022211037 Vild från Mån 7.71 7.55 7.61 Robin Haraldsen
SE2019133009 Ragnar från Heden 1 7.79 7.46 7.58 Hjalti Guðmundsson Dagbjört Hrund Hjaltadóttir
SE2017233908 Freydís från Heden 1 8.04 7.25 7.53 Hjalti Guðmundsson Dagbjört Hrund Hjaltadóttir
SE2019214002 Vilja från Nybygården 8.05 7.19 7.49 Robin Haraldsen
SE2021227005 Gloría från Alsters Hult Gård 7.89 7.25 7.48 Máni Hilmarsson
SE2021211021 Veira från Trädgårdsnäset 8.02 7.16 7.46 Berglind Rósa Guðmundsdóttir
SE2020227999 Glenna från Snubberöd 7.64 7.32 7.43 Daníel Ingi Smárason
SE2019215018 Júlía från Attorp 7.74 7.22 7.4 Erlingur Erlingsson
SE2022233000 Álfadís från Valne Gård 7.84 7.14 7.39 Gudmundur Einarsson Dagbjört Hrund Hjaltadóttir
SE2019224031 Rán från Iskroken 7.77 7.15 7.37 Anne-Marie Röst
SE2022233002 Freyja från Valne Gård 7.86 7.05 7.33 Gudmundur Einarsson Dagbjört Hrund Hjaltadóttir
SE2022211038 Blanka från Mån 8.04 6.86 7.28 Robin Haraldsen
IS2017275238 Lukkudís frá Aðalbóli 7.3 7.22 7.25 Berit Edvardsson Islandshästar AB Berit Edvardsson Islandshästar AB
SE2020233002 Birtudís från Råken 7.71 6.82 7.13 Berit Edvardsson Islandshästar AB Berit Edvardsson Islandshästar AB
SE2018233005 Nóta från Västeråsen 7.59 6.82 7.09 Berit Edvardsson Islandshästar AB Berit Edvardsson Islandshästar AB
SE2021224019 Veisla från Solbacken 7.6 6.55 6.92 Berit Edvardsson Islandshästar AB
SE2021231009 Hrímey från Boivies Gård 7.38 Paulsson Malin
SE2020218001 Íris från Frösslunda 7.75 Máni Hilmarsson
SE2021211996 Ósk från Edö 7.79 Brandt Annelie Brandt Annelie
SE2021128016 Valíant från Tenglagården 8.61 Máni Hilmarsson
SE2019230011 Valsa från Sörbo Gullbacken 8.08 Máni Hilmarsson
SE2021232002 Viska från Dacke 7.59 Brandt Annelie
DK2021100029 Þorsti fra Slippen 7.96 Robin Haraldsen

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link