Dýralæknaskoðun úrslitahesta

  • 10. júlí 2015
  • Fréttir
Allir hestar þurfa að mæta í dýralæknaskoðun.

Vakin er athygli á því að þeir hestar sem eiga að mæta í a- og b-úrslit í öllum greinum ungmenna- og meistaraflokks eru skyldugir til þess að mæta í dýralæknaskoðun áður en mætt er til úrslita. Börn og unglingar eiga ekki að mæta til dýralæknisskoðunar.

Knapar eru beðnir um að mæta tímanlega.

Dýralæknisskoðun fer fram í Hattarvallahöll (gamla reiðhöllin Andvaramegin). Dýralæknisskoðunin fer fram laugardaginn 11.júlí milli kl.13-17 og sunnudaginn 12.júlí milli kl.10-12. A-úrslita hestar mega mæta í skoðun á laugardegi ef þeir vilja en b-úrslitahestar ganga fyrir í skoðun.

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link