„Eflum samstarf BÍ við forystu búgreinadeilda og grasrótarinnar“

  • 26. febrúar 2024
  • Fréttir

Trausti í fjallferð

Trausti Hjálmarsson frambjóðandi til fomanns BÍ

Gunnar Þorgeirsson, garðyrkjubóndi Ártanga, og Trausti Hjálmarsson, sauðfjárbóndi og hrossaræktandi í Austurhlíð, hafa gefið kost á sér í embætti formanns Bændasamtaka Íslands.

Gunnar Þorgeirsson hefur gengt embættinu frá 2020 og sækist eftir endurkjöri. Trausti Hjálmarsson hefur verið formaður deildar sauðfjárbænda frá 2022 en lét af því embætti á Deildafundum búgreina 12. og 13. febrúar síðastliðinn.

Kosið verður um formann rafrænt frá miðnætti 1. mars til miðnættis 2. mars. Slóð á kosningasíðuna verður gerð aðgengileg á heimasíðu Bændasamtakanna, bondi.is, og send félagsmönnum í tölvupósti þegar kosning hefst. Félagsmenn BÍ sem greiddu félagsgjöld fyrir 31. desember 2023 hafa kosningarétt. Fleiri en einn geta haft kosningarétt frá sama búi. Hver og einn getur kosið oftar en einu sinni, en einungis síðasta atkvæðið gildir. Nái enginn frambjóðandi meira en fimmtíu prósent atkvæða þarf að kjósa aftur 5. og 6. mars.

Blaðamaður Eiðfaxa heyrði í frambjóðendunum og lagði fyrir þá þrjár spurningar er ættu að gefa hrossabændum svör um þeirra sýn á Búgreinadeild hrossabænda og málefnum BÍ. Trausti ríður á vaðið en svör Gunnars við sömu spurningum birtast einnig á vefsíðu Eiðfaxa von bráðar.

Trausti Hjálmarsson er sauðfjárbóndi og hrossaræktandi í Austurhlíð í Biskupstungum ásamt eiginkonu sinni, Kristínu Sigríði Magnúsdóttur.

Hvernig horfir starf BÍ við þér og þá sérstaklega framtíðarsýn á Búgreinadeild hrossabænda?

Líkt og með allar aðrar búgreinar innan BÍ þá er mikilvægt að við náum að efla starf deildarinnar. Þegar að ég segi efla að þá á ég við það að við þurfum sem samtök að treysta betur þau bönd sem að eru á milli stjórnar BÍ og þeirra sem að búgreinarnar velja sér til forystu og svo grasrótarinnar sjálfrar. Við þurfum að geta gefið deild hrossabænda, líkt og öðrum deildum, aukið svigrúm til að sinna grasrótarstarfinu. Ef að okkur tekst að efla grasrótarstarfið og koma málefnum hennar betur á dagskrá BÍ þá getum við þétt raðirnar enn betur sem samtök allra bænda. Félagsmenn deildar hrossabænda þurfa að finna sig velkomna í BÍ og deildin þarf að geta markað sér skýra stefnu um sitt hlutverk og sýnar áherslur sem að formaður og stjórn BÍ styður svo við.

Hvers vegna ættu hrossabændur að vera aðilar að Búgreinadeild/Bí?

Hrossabændur eru að mínu viti að framleiða eina verðmætustu útflutningsvöru íslenskra bænda, íslenska hestinn. Um það bil 12% allra ferðamanna sem að sækja Ísland heim koma hingað til að kynnast íslenska hestinum. Það eru mikil verðmæti.

Það eru engir betur til þess fallnir að halda á sérhagsmunum hrossabænda heldur en þeir sjálfir. Með aðild að BÍ eru hrossabændur að tryggja sína aðkomu að fjöreggi hrossabænda sem að er ræktunarstarfið sjálft. Það á að vera í höndum bænda sjálfra að marka sér sýna framtíðarsýn og leggja línurnar í ræktuninni.

Hversvegna ætti fólk að kjósa þig sem formann?

Ég er hestamaður og sauðfjárbóndi en umfram allt áhugamaður um íslenskan landbúnað. Ég lít á hestamennsku og hrossarækt sem eina af hinum fjölmörgu grunnstoðum íslensk landbúnaðar. Það er fjölbreytnin sem að við byggjum okkar landbúnað á.

Hestamenn eiga að mínu viti að geta sótt fram á öllum sviðum hestamennskunnar og formaður BÍ á í sífellu að geta staðið með, stutt við og sótt fram, fyrir og með íslenskum hrossabændum líkt og öðrum bændum annarra búgreina. Það treysti ég mér til að gera en til þess að það sé hægt þarf ég stuðning hrossabænda.

Sjáumst svo hress á Landsmóti Hestamanna í Reykjavik í sumar.

Trausti Hjálmarsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link