„Ég biðst afsökunar“
Blaðamaður Eiðfaxa hafði samband við Steve O’Grady dýralækninn og járningamanninn sem flutti inn notaðan búnað þegar hann kom til landsins að meðhöndla Blysfara frá Fremra-Hálsi. Eins og fram hefur komið hér á vefnum þá hefur Matvælastofnun brugðist við og sent frá sér fyrirmæli hvernig umgangast skuli hross og hrossaflutning til og frá þeim stað sem meint smit gæti komið upp.
Í svari frá dýralækninum segir:
Í fyrsta lagi langar mig að biðjast afsökunar og benda á að ákveðins misskilnings hafa gætt í umræðunni um þetta mál.
„Ég ferðast um allan heim í þeim tilgangi að meðhöndla hesta. Ég notaði sérhæfð verkfæri sem ekki eru í boði á Íslandi. En þar sem ég er dýralæknir auk þess járningarmeistari er ég er mjög meðvitaður um útbreiðslu sjúkdóma“
Mig langar að koma með nokkra punkta :
- Áður en ég fór í þessa ferð var mér ókunnugt um hvaða reglur eða takmarkanir væru í gildi varðandi flutning á járningarverkfærum til Íslands.
- Tækin sem ég kom með eru aðeins notuð á ferðalögum mínum og eru þrifin / sótthreinsuð ( chlorohexidine ) eftir hverja ferð .
- Svunta er úr svokölluðu ID efni og er með leður hnéhlífum.
- Hóftangir og raspar sem ég notaði voru glænýir.
- Öll fylli-, og viðgerðarefni voru ný og óopnuð.
- Ferðasettið mitt var geymt í frysti í 14 klukkustundir til að drepa bakteríur.
Að lokum ef litið er í fræðin í dýralæknavísindum þá er ljóst að fótur hestsins hefur mestu mótstöðu/hlífð af öllum líkamshlutum hans gegn sýkingum.
„Svo að það komi skýrt fram þá virði ég lög / reglugerðir hvers lands og hefði fylgt þeim í einu og öllu hefði ég verið upplýstur um þær áður en ég lagði í þessa ferð.“ segir Steve og vill að lokum hrósa fyrir það fallega land og frábæra hest sem þjóðin býr að á Íslandi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH