„Ég elska að gera þetta“
Þetta er í fyrsta sinn í sögu mótanna að Heimsmeistaramótið er haldið í þriðja sinn af sömu mótshöldurum og á sama svæði en mótinu voru haldin hér árið 2007 og 2017. Coen Buijsse er framkvæmdastjóri mótsins og Eiðfaxi hitti hann í gærkvöldi og tók létt spjall við hann.
“Ég er smá þreyttur ef ég á að vera hreinskilin. Þetta er búið að vera erfið vika og ég er búin að þurfa vinna mjög hratt og mikið síðustu daga. Það er ekki útaf því að þetta var illa skipulagt heldur setti veðrið stórt strik í reikninginn. Síðustu tvær vikur rigndi yfir 200 mm. Við erum mjög heppin hvað jarðvegurinn hér er góður þannig að svæðið þornar mjög fljótt. Við vorum öll búin að gleyma því hér í morgun að það var búið að rigna svona,” segr Coen sem var mjög glaður að vera loks í þurrum skóm. Það er samt ótrúlegt að sjá miðað við rigningu síðustu vikur hvað jarðvegurinn á svæðinu er strax orðinn þetta þurr.
Það tekur yfir 4 ár að skipuleggja Heimsmeistaramót en hálfu ári áður en mótið var haldið í Berlín var Coen og hans teymi strax farin að huga að þessu móti. Í febrúar 2020 skrifuðu þau undir samning við FEIF en 4 vikum seinna var heimurinn orðinn breyttur.
“Covid hafði líka góð áhrif. Það eru allir búnir að vera svakalega spenntir að mæta á Heimsmeistaramót loksins eftir 4 ára bið. Við erum komin hingað og ætlum að njóta þess.”
Aðspurður hvers fólks megi vænta þegar það mætir á svæðið segir Coen fallegs umhverfis, skemmtilegu fólki og mikið af góðum hrossum.
“Við dekstruðum við innganginn og þegar þú ferð í gegnum tjaldið þar labbar þú beint inn á markaðssvæðið sem ég líki við Champs-Élysées í París. Þú sérð flottar búðir sem þig langar að skoða í og þegar þú labbar aðeins lengra kemur þú inn á veitingasvæði sem allt er pallalagt og þar er eitthvað fyrir alla. Kampavínsbar, gosbrunnur og allskonar fleira,”
Hvað fær fólk eins Coen Buijsse og teymi hans til að langa halda svona stóra viðburði aftur og aftur. 85% af þeim sjálfboðaliðum sem eru á mótinu voru líka með honum á síðasta móti sem þau héldu.
“Þú þarft að vera smá klikkaður og þetta verður líka ákveðin fíkn. Við vinnum aðallega með sjálfboðaliðum og erum við með í kringum 450 sjálfboðaliða á mótinu. Frá 13 löndum en elsta er 80 ára. Það er það sem er gaman við þetta. Koma ólíku fólki saman og byggja eitthvað skemmtilegt upp. Mótið nú er ennþá betra en það var 2017 og ég er strax farinn að hugsa hvernig ég geti gert enn betur næst. Við elskum að gera þetta.”
Búist er við að um 45.000 manns muni mæta á mótið yfir vikuna. Stúkan tekur 9.000 manns í sæti og er búið að selja um 85-90% af miðum um helgina. “Kaupið miða núna áður en það verður uppselt,” segir Coen að lokum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH