Eik efst á stöðulist í ungmennaflokki
Það er gaman að velta fyrir sér stöðulistum inná mótið og næsti flokkur sem við kíkjum á er ungmennaflokkur. Ungmennin ríða í braut á mánudagsmorgni en 98 knapar eru skráðir í ungmennaflokk á Landsmóti, sem er örlítil aukning frá síðasta móti. Það er nýjung í ár að keppt verður í A flokki ungmenna sem er ein af tveimur sýningargreinum mótsins.
Ungmennaflokkurinn lofar góðu fyrir Landsmót
Efst á stöðulista í ungmennaflokki er Eik Elvarsdóttir á Val frá Stangarlæk 1. Þau eru að keppa fyrir hestamannafélagið Geysi. Þetta er fyrsta árið í ungmennaflokki en þau voru í öðru sæti í unglingaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga í fyrra en þá var boðið upp á keppni í gæðingakeppni.
Önnur í röðinni er Guðný Dís Jónsdóttir á Goða frá Garðabæ en þau keppa fyrir hestamannafélagið Sprett. Þetta er annað keppnistímabil þeirra saman. Hekla Rán Hannesdóttir er þriðja í röðinni á Tind frá Árdal en þau keppa einnig fyrir Sprett.
Ríkjandi Landsmótssigurvegari mætir til leiks
Matthías Sigurðsson og Tumi frá Jarðbrú eru skráðir til leiks en þeir unnu ungmennaflokkinn á síðasta Landsmóti eftir að hafa komið upp úr B úrslitum. Þeir keppa fyrir hestamannafélagið Fák.
Fyrsta sinn A flokkur ungmenna á Landsmóti
Eins og áður hefur komið fram verður í fyrsta sinn boðið upp á A flokk ungmenna á Landsmóti og er greinin sýningargrein. 52 keppendur eru skráðir í A flokk ungmenna.
Kristín Eir Haukdsóttir Holaker og Abel frá Skáney eru efst á stöðulista í A flokki ungmenna. Rétt á eftir þeim er Auður Karen Auðbjörnsdóttir á Sturlu frá Bræðratungu og Jón Ársæll Bergmann á Kjarval frá Skíðbakka III.
Landsmót 2026 í beinni á EiðfaxaTV
Landsmót hestamanna verður sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.
Stöðulisti í B flokki ungmenna
Hér fyrir neðan er stöðulistinn í B flokk ungmenna, 30 efstu hestar.
| 1 | Eik Elvarsdóttir | IS2018188096 Valur frá Stangarlæk 1 | 8,75 |
| 2 | Guðný Dís Jónsdóttir | IS2016125400 Goði frá Garðabæ | 8,71 |
| 3 | Hekla Rán Hannesdóttir | IS2017135591 Tindur frá Árdal | 8,69 |
| 4 | Ída Mekkín Hlynsdóttir | IS2010277156 Marín frá Lækjarbrekku 2 | 8,68 |
| 5 | Anika Hrund Ómarsdóttir | IS2018184669 Dáðhugi frá Álfhólum | 8,67 |
| 6 | Jón Ársæll Bergmann | IS2018157338 Viskusteinn frá Íbishóli | 8,66 |
| 7 | Snæfríður Ásta Jónasdóttir | IS2014184743 Stimpill frá Strandarhöfði | 8,65 |
| 8 | Fanndís Helgadóttir | IS2018182575 Hraunhamar frá Ragnheiðarstöðum | 8,64 |
| 9 | Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal | IS2016158306 Grettir frá Hólum | 8,64 |
| 10 | Lilja Rún Sigurjónsdóttir | IS2015101554 Draupnir frá Dimmuborg | 8,63 |
| 11 | Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir | IS2015155572 Garri frá Bessastöðum | 8,63 |
| 12 | Kolbrún Sif Sindradóttir | IS2013187251 Toppur frá Sæfelli | 8,60 |
| 13 | Kolbrún Sif Sindradóttir | IS2017184997 Höfðingi frá Miðhúsum | 8,59 |
| 14 | Hekla Rán Hannesdóttir | IS2017157802 Dimmir frá Varmalæk | 8,59 |
| 15 | Matthías Sigurðsson | IS2014165338 Tumi frá Jarðbrú | 8,59 |
| 16 | Elva Rún Jónsdóttir | IS2019286902 Björt frá Feti | 8,59 |
| 17 | Auður Karen Auðbjörnsdóttir | IS2018265699 Ósk frá Akureyri | 8,57 |
| 18 | Eva Kærnested | IS2012181830 Styrkur frá Skák | 8,55 |
| 19 | Ragnar Snær Viðarsson | IS2019101178 Hinrik frá Hásæti | 8,55 |
| 20 | Sigurður Steingrímsson | IS2018280378 Rún frá Koltursey | 8,55 |
| 21 | Herdís Björg Jóhannsdóttir | IS2016188690 Þór frá Efri-Brú | 8,55 |
| 22 | Helgi Freyr Haraldsson | IS2014180616 Hrynjandi frá Strönd II | 8,54 |
| 23 | Ingunn Rán Sigurðardóttir | IS2019281516 Svört frá Einhamri | 8,54 |
| 24 | Snæfríður Ásta Jónasdóttir | IS2018184744 Feykir frá Strandarhöfði | 8,54 |
| 25 | Sigurbjörg Helgadóttir | IS2018182866 Skuggabaldur frá Stórhólma | 8,53 |
| 26 | Lilja Rún Sigurjónsdóttir | IS2019265300 Spenna frá Skriðu | 8,53 |
| 27 | Guðrún Lilja Rúnarsdóttir | IS2018225095 Kolgríma frá Morastöðum | 8,53 |
| 28 | Hildur María Jóhannesdóttir | IS2016136520 Hervar frá Svignaskarði | 8,52 |
| 29 | Hulda Ingadóttir | IS2013180469 Bliki frá Eystri-Hól | 8,52 |
| 30 | Þórgunnur Þórarinsdóttir | IS2018201810 Hetja frá Hestkletti | 8,51 |
| 31 | Bjarndís Rut Ragnarsdóttir | IS2013180603 Tenór frá Hemlu II | 8,51 |
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Tinni slær heimsmet
Gistimöguleikar fyrir gesti Landsmóts