Kynbótasýningar Eitt hross hlaut 10 fyrir tölt á árinu

  • 13. september 2022
  • Fréttir

Sólfaxi frá Herríðarhóli hlaut 10 fyrir tölt á Landsmóti, sýnandi Árni Björn Pálsson. Mynd: Óðinn Örn

Nítján hross hlutu 9,5 fyrir tölt á árinu

Nú þegar kynbótasýningum árið 2022 er lokið þá er gaman að renna yfir níufimmur og tíur ársins í einstökum eiginleikum. Fyrsti eiginleikinn sem við tökum fyrir hér á vef Eiðfaxa er tölt.

Sólfaxi frá Herríðarhóli var sá eini sem hlaut 10,0 fyrir tölt á árinu en hann hlaut einkunnina tvisvar. Fyrst á vorsýningu á Hellu og síðan á Landsmótinu. Til gamans má geta að Sólfaxi hlaut einnig 10 fyrir hægt tölt en sá eiginleiki verður tekin fyrir seinna.

Sólfaxi er undan Óskasteini frá Íbisóli og Hyllingu frá Herríðarhóli. Ræktandi Sólfaxa er Ólafur Arnar Jónsson en eigendur eru Anja Egger-Meier og Grunur ehf. Sólfaxi var sýndur af Árna Birni Pálssyni.

Nítján hross hlutu 9,5 fyrir tölt á árinu. Athygli vekur að öll þessi hross voru sýnd á Íslandi.

Listi yfir þau hross sem hlutu 9,5 fyrir tölt.

Hestur Uppruni Sýnandi
Auðlind Þjórsárbakka Teitur Árnason
Bárður Sólheimum Helga Una Björnsdóttir
Dís Ytra-Vallholti Bjarni Jónasson
Draumur Feti Ólafur Andri Guðmundsson
Dússý Vakurstöðum Teitur Árnason
Fróði Flugumýri Eyrún Ýr Pálsdóttir
Hannibal Þúfum Mette Camilla Moe Mannseth
Hreyfing Akureyri Þórarinn Eymundsson
Hringsjá Enni Teitur Árnason
Kastanía Kvistum Árni Björn Pálsson
Kveikja Hemlu II Vignir Siggeirsson
Lýdía Eystri-Hól Árni Björn Pálsson
Nótt Miklaholti Árni Björn Pálsson
Rjúpa Þjórsárbakka Teitur Árnason
Safír Hjarðartúni Hans Þór Hilmarsson
Sindri Hjarðartúni Hans Þór Hilmarsson
Skarpur Kýrholti Jakob Svavar Sigurðsson
Staka Hólum Mette Camilla Moe Mannseth
Stjörnuþoka Litlu-Brekku Vignir Sigurðsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar