Ekkert Landsmót án smá dramatíkur – myndir & video

  • 29. júní 2011
  • Fréttir
Ekkert Landsmót án smá dramatíkur - myndir & video

Áhorfendur við Gæðingavöllinn tóku andköf þegar Erlingur Erlingsson flaug af baki Tenórs frá Túnsbrekku í þann mund sem þeir voru að leggja af stað í skeiðsprett í milliriðlum A-flokks gæðinga.

Tenór hafði látið fyrir sér finna inn á hringvelli áður og virtist sem Erlingur ætti í nokkrum erfiðleikum með að hægja gæðinginn niður eftir að hafa sýnt stökk. Fjör hefur verið í Tenóri því þegar kom að því að spretta af stað á skeið vildi ekki betur til en svo að hesturinn hoppaði yfir girðingu vallarins og Erlingur lá flatur eftir. Hann virtist þó ekki slasaður, sem betur fer, heldur stökk strax á lappir og fékk far hjá vélskjóta að hestinum sem skokkaði um melanna einn síns liðs.

Þeir sem þekkja best til vita að það fer ekki fram Landsmót án óvæntra uppákoma. Smá dramatík er einmitt hluti af leiknum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link