Elin hlaut FT fjöðrina
FT Fjöðrin er veitt af Félagi Tamningamanna fyrir ákveðna sýningu á einum hesti sem
uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
Reiðfærni þess sem FT fjöðrina hlýtur skal einkennast af léttleika, lipurð og samspili þar
sem saman fer einstök útgeislun og jafnvægi. Knapi og hestur ljóma af heilbrigði, krafti
og gleði. Verðlaunin eru veitt fyrir einstaka útgeislun knapa og hests. Hesturinn sé sjálfberandi,
sterkur og mjúkur. Reiðmennska einkennist af samspili og léttleika.
Elin Holst hlýtur FT fjöðrina fyrir sýningu sína á glæsihryssunni Hugsýn frá Ketilsstöðum í 6 vetra flokki hryssna.
„Sýningin þeirra einkenndist af frábæru samspili þar sem þær ljóma báðar af gleði. Hryssan tilbúin að taka á af fullum afköstum, bera sig fallega á hægu tölti en alltaf tilbúin að slaka á. Hugsýn ber knapa sínum og þjálfara gott vitni. Léttleiki, fas, kraftur og jafnvægi ! Elin er fyrirmyndar knapi og áttu þær Hugsýn einnig fallega sýningu í 4v flokknum á LM2024, sem endurspeglar góða sanngjarna reiðmennsku þar sem hryssan heldur áfram að bæta sig.“
Innilegar hamingjuóskir með FT fjöðrina Elin
Elin hlaut FT fjöðrina
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars