Engin regla verið fest í sessi
Haraldur Þórarinsson, formaður LH og stjórnarformaður Landsmóts ehf..
Ákvörðun stjórnar Landssambands hestamannafélaga í gær um staðarval fyrir Landsmót 2014 og 2016 kom nokkuð á óvart. Legið hefur í loftinu að samþykkt yrði umsókn frá Funa í Eyjafirði um Landsmót 2014 eða 2016. Var það af mörgum talið sanngirnismál í ljósi sögu Landsmóta hestamanna, og einnig er svæðið á Melgerðismelum á margan hátt mjög ákjósanlegt fyrir Landsmótahald.
Stjórn LH ákvað hins vegar að ganga að samningsborði við Rangárbakka um Landsmót 2014 á Gaddstaðaflötum við Hellu, og við Gullhyl um Landsmót á Vindheimamelum.
Haraldur Þórarinsson, formaður LH og stjórnarformaður Landsmóts ehf., segir að þetta hafi orðið niðurstaða stjórnar eftir að umsóknir hafi verið vegnar og metnar. Taka þurfi tillit til margra sjónarmiða. Niðurstaðan hafi verið fengin með lýðræðislegum hætti og stjórnin standi einhuga á bak við hana.
– En felst ekki í þessari ákvörðun að búið sé að festa í sessi reglu um eitt Landsmót á Norðulandi og eitt á Suðurlandi, á Vindheimamelum og Gaddstaðaflötum, og þar með sé búið að slá Melgerðismela út af borðinu?
„Í mínum huga er það alls ekki, þótt það kunni að líta þannig út í augnablikinu,“ segir Haraldur. Ég viðurkenni fúslega að þessi ákvörðun núna kemur eins og blaut tuska í andlit Eyfirðinga. En það er ekki einfalt mál að koma þessum hlutum heim og saman. Það eru mörg sjónarmið sem þarf að taka tillit til. Funi stendur einfaldlega ekki jafnvel að vígi með sína umsókn og þeir aðilar sem urðu fyrir valinu.
Landsmót ehf. er skuldugt eftir hrakfarir síðustu ára, þar sem hestapestin setti strik í reikninginn. Það er mjög mikilvægt að við náum að rétta félagið af sem fyrst. Landsmót á Hellu hafa jafnan verið þau fjölsóttustu og það var nokkur hagnaður af síðasta Landsmóti þar 2008. Við vitum að sjálfssögðu ekki fyrirfram hvernig tekst til í Reykjavík næsta sumar. Ef mótið tekst vel þá tel ég að það opni á nýja möguleika í staðarvali fyrir Landsmót í framtíðinni, þar sem fleiri staðir koma þá til greina. Hvað mig varðar þá er ekki búið að festa neina reglu í sessi varðandi staðarval Landsmóta hestamanna,“ segir Haraldur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH