„Engin skyndiákvörðun“
Kristinn Hugason fyrrum hrossaræktarráðunautur hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns LH.
„Þetta er engin skyndiákvörðun en ég hef um langt skeið haft áhuga á að láta til mín taka á þeim vettvangi. Eins og þið eflaust öll vitið hef ég áður unnið að málum innan hestamennskunnar, bæði sem hrossaræktarráðunautur og á fleiri vettvöngum. Ég hef ætíð lagt kapp á að leggja mig allan fram, ég vil sýna styrk og framtakssemi og í enda dags sýni merkin verkin. Jafnframt hef ég ætíð lagt á það höfuðáherslu þar sem mér er trúað fyrir verkum að draga einskiss taum, þ.e. að vinna ekki að framgangi eins á kostnað annars. Til að leggja áherslu á þau þrjú mál sem ég tel afar brýn fyrir okkur hestamenn, þ.e. heildarsameining greinarinnar, bættir samskiptahættir og samstaða um landsmótshald hvort sem er í bæ eða byggð“
Kristinn birti grein í fréttablaðinu í morgun um samstöðu hestamanna og hvert ætti að stefna. Hægt er að lesa hana hér
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH