Enn laus pláss á Gait Academy
Stian Pedersen
Enn er laust fyrir þrjá áhugasama nemendur á reiðnámskeið með Stian Pedersen, Bent Rune Skulevold og Eyjólfi Þorsteinssyni sem haldið verður 11.-13. janúar nk. á Sörlastöðum í Hafnarfirði.
„Í mörg ár hafa þeir félagar verið með námskeiðið Gait Academy, bæði í Noregi og Danmörku við frábæran orðstír. Nú loks verður námskeiðið haldið hér á Íslandi. Námskeiðið verður 11.-13. janúar n.k á Sörlastöðum í Hafnarfirði. Frábært þriggja daga helgarnámskeið fyrir alla sem vilja komast á næsta stig hestamennskunnar.
Byrjað verður á kynningu á Gait Academy , svo er bæði bókleg og verkleg kennsla.
Öflugt og krefjandi námskeið fyrir alla, hvar sem þeir eru staddir í hestamennskunni,“ segir í tilkynningu en nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Gait Academy og skráning er í gegnum netfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH