Kynbótasýningar Enn þarf að fresta skráningum á kynbótasýningar

  • 28. apríl 2026
  • Fréttir
Opnað verður þriðjudaginn 5. maí kl. 9:00

Vegna bilana er nauðsynlegt að fresta enn skráningum á kynbótasýningar. Opnað verður á skráningar þriðjudaginn 5. maí klukkan 09:00. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en verið er að vinna að lausn málsins.

Leiðbeiningar um skráningarkerfið er hægt að nálgast í gegnum tengil hér neðst á síðunni. Þar er farið yfir helstu skráningarmyndirnar sem birtast í skráningarkerfinu. Það sem nauðsynlegt er að hafa við hendina er fæðingarnúmer hrossins, kennitala knapa og greiðslukort.

Minnt  er á eftirfarandi:

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema þau uppfylli eftirfarandi skilyrði:

  • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra.
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt.
  • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNA-greiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Sjá nánar:
Leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningar
Frétt birt á vef RML þann 17. apríl um kynbótasýningar vorsins

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link