Erla Guðný og lið Fossvéla töltmeistarar Samskipadeildar
Erla Guðný og Fluga frá Garðabæ. Ljósmyndir: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Síðasta hringvallargreinin í Samskipadeildinni – Áhugamannadeild Spretts fór fram í gærkvöldi þegar keppt var í tölti. Síðasta mótið í deildinni fer svo fram 18.apríl þegar keppt verður í skeiði og svo þann sama dag er lokahóf deildarinnar.
Í töltinu í gærkvöldi var það Erla Guðný Gylfadóttir á Flugu frá Garðabæ sem leiddi að lokinni forkeppni með 6,73 í einkunn. Í öðru sæti var liðsfélagi hennar úr liði Fossvéla, Gunnar Már Þórðarson á Júpíter frá Votumýri 2 og í því þriðja Darri Gunnarsson og Draumur frá Breiðstöðum með 6,43.
Í A-úrslitum hélt Erla Guðný forystunni og stóð uppi sem sigurvegari með 6,94 í einkunn. Darri Gunnarsson vann sig upp í annað sætið með 6,67 og í því þriðja varð Sarah Maagaard Nielsen með 6,61.

Lið Fossvéla f.v. Viðar Ingólfsson þjálfari, Theódóra Þorvaldsdóttir, Erla Guðný Gylfadóttir, Gunnar Már Þórðarson, Þórdís Sigurðardóttir og Þórunn Kristjánsdóttir.
Lið Fossvéla var stigahæsta lið kvöldsins en auk þeirra Erlu Guðnýjar og Gunnars Más keppti Þórdís Sigurðardóttir fyrir liðið á Árvakri frá Minni-Borg og vann hún B-úrslitin með einkunnina 6,28.
Spenna í einstaklings- og liðakeppninni
Nú þegar eitt mót er eftir í Samskipadeildinni er það Erla Guðný sem leiðir einstaklingskeppnina með 29 stig. Sara M. Nielsen er önnur með 27.5 stig og þriðji er Darri Gunnarsson með 20 stig.
Fossvélar eru efst í liðakeppninni með 417 stig, Réttverk í öðru með 372.5 stig og Frosti í þriðja með 371.5 stig. Hér fyrir neðan er hægt að sjá heildarstöðuna í liða- og einstaklingskeppninni.
Niðurstaða í Devold tölti Samskipadeildar
| Forkeppni | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Erla Guðný Gylfadóttir | Fluga frá Garðabæ | 6,73 |
| 2 | Gunnar Már Þórðarson | Júpíter frá Votumýri 2 | 6,67 |
| 3 | Darri Gunnarsson | Draumur frá Breiðstöðum | 6,43 |
| 4 | Sarah Maagaard Nielsen | Gjálp frá Miðkoti | 6,37 |
| 5-6 | Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir | Hnokki frá Áslandi | 6,30 |
| 5-6 | Elín Hrönn Sigurðardóttir | Framsýn frá Skeiðvöllum | 6,30 |
| 7 | Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir | Hrókur frá Hafragili | 6,30 |
| 8-9 | Arnhildur Halldórsdóttir | Heiðrós frá Tvennu | 6,13 |
| 8-9 | Guðlaug Jóna Matthíasdóttir | Kata frá Korpu | 6,13 |
| 10 | Þórdís Sigurðardóttir | Árvakur frá Minni-Borg | 6,07 |
| 11 | Rósa Valdimarsdóttir | Kopar frá Álfhólum | 6,00 |
| 12 | Inga Kristín Campos | Ísberg frá Hákoti | 5,93 |
| 13 | Sigurður V. Ragnarsson | Stjörnusteinn frá Egilsstöðum 1 | 5,93 |
| 14 | Veronika Osterhammer | Blakkur frá Brimilsvöllum | 5,93 |
| 15-16 | Anna Kristín Kristinsdóttir | Styrkur frá Stokkhólma | 5,87 |
| 15-16 | Glódís Helgadóttir | Ötull frá Narfastöðum | 5,87 |
| 17-21 | Auður Stefánsdóttir | Sara frá Vindási | 5,80 |
| 17-21 | Gunnar Eyjólfsson | Eldey frá Litlalandi Ásahreppi | 5,80 |
| 17-21 | Guðmundur Ásgeir Björnsson | Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 | 5,80 |
| 17-21 | Ámundi Sigurðsson | Embla frá Miklagarði | 5,80 |
| 17-21 | Alexander Ágústsson | Ásvar frá Hamrahóli | 5,80 |
| 22 | Inga Kristín Sigurgeirsdóttir | Kví frá Víðivöllum fremri | 5,77 |
| 23 | Ólöf Guðmundsdóttir | Tónn frá Hestasýn | 5,73 |
| 24-25 | Arna Hrönn Ámundadóttir | Aspar frá Miklagarði | 5,63 |
| 24-25 | Valdimar Ómarsson | Geimfari frá Álfhólum | 5,63 |
| 26 | Sigurbjörn Eiríksson | Ás frá Hofsstöðum, Garðabæ | 5,57 |
| 27-28 | Páll Jóhann Pálsson | Dalur frá Efri-Brúnavöllum I | 5,50 |
| 27-28 | Sigurður Jóhann Tyrfingsson | Sól frá Kirkjubæ | 5,50 |
| 29 | Árni Geir Norðdahl Eyþórsson | Þökk frá Austurkoti | 5,47 |
| 30 | Ragnheiður Jónsdóttir | Góa frá Vestra-Fíflholti | 5,43 |
| 31 | Elín Íris Jónasdóttir | Rökkvi frá Lækjardal | 5,40 |
| 32 | Kristinn Karl Garðarsson | Beitir frá Gunnarsstöðum | 5,37 |
| 33-34 | Sverrir Sigurðsson | Þoka frá Höfðabakka | 5,23 |
| 33-34 | Klara Sif Ásmundsdóttir | Fenja frá Hvolsvelli | 5,23 |
| 35 | Harpa Kristjánsdóttir | Sóley frá Heiði | 5,07 |
| 36-37 | Halldóra Sif Guðlaugsdóttir | Nökkvi frá Laufbrekku | 4,93 |
| 36-37 | Birna Ólafsdóttir | Andvari frá Skipaskaga | 4,93 |
| 38 | Patricia Ladina Hobi | Dofri frá Þjóðólfshaga 1 | 4,87 |
| 39 | Kristín Birna Óskarsdóttir | Þyrnir frá Enni | 4,70 |
| 40 | Guðrún Randalín Lárusdóttir | Ljósvaki frá Túnsbergi | 4,60 |
| 41 | Anna Vilbergsdóttir | Yrja frá Miðgili | 4,57 |
| 42 | Jón Geir Sigurbjörnsson | Fjarki frá Álfhólum | 4,33 |
| B úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 7 | Þórdís Sigurðardóttir | Árvakur frá Minni-Borg | 6,28 |
| 8 | Guðlaug Jóna Matthíasdóttir | Kata frá Korpu | 6,17 |
| 9-10 | Rósa Valdimarsdóttir | Kopar frá Álfhólum | 6,11 |
| 9-10 | Arnhildur Halldórsdóttir | Heiðrós frá Tvennu | 6,11 |
| 11 | Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir | Hrókur frá Hafragili | 6,06 |
| 12 | Inga Kristín Campos | Ísberg frá Hákoti | 5,89 |
| A úrslit | |||
| Sæti | Knapi | Hross | Einkunn |
| 1 | Erla Guðný Gylfadóttir | Fluga frá Garðabæ | 6,94 |
| 2 | Darri Gunnarsson | Draumur frá Breiðstöðum | 6,67 |
| 3 | Sarah Maagaard Nielsen | Gjálp frá Miðkoti | 6,61 |
| 4 | Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir | Hnokki frá Áslandi | 6,56 |
| 5 | Elín Hrönn Sigurðardóttir | Framsýn frá Skeiðvöllum | 6,44 |
| 6 | Gunnar Már Þórðarson | Júpíter frá Votumýri 2 | 6,39 |
Staðan í liðakeppninni
- Fossvélar 417
- Réttverk 372.5
- Frosti 371.5
- Hótel Rangá 328.5
- Trausti 327
- Sveitin 310
- Stafholthestar 240.5
- JBT Marel & Tommy Hilfiger 235
- Rembrandt 225
- Vestlendingar 217
- Lið Spesíunnar 175.5
- Nýsmíði 154
- Hrossaræktin Strönd 113
- Vörðufell 100.5
Staðan í einstaklingskeppninni, efstu 10
- Erla Guðný Gylfadóttir 29
- Sara M. Nielsen 27.5
- Darri Gunnarsson 20
- Glódís Helgadóttir 17
- Auður Stefánsdóttir 15
- Gunnar Már Þórðarson 15
- Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir 14.5
- Þórunn Kristjándóttir 12
- Kristín Ingólfsdóttir 11
- Rúnar Bragason 10
Erla Guðný og lið Fossvéla töltmeistarar Samskipadeildar
Ný stjórn deildar hrossabænda innan BÍ
Stefnir í skemmtilega Stóðhestaveislu!
Ráslistar fyrir skeiðmót Meistaradeildarinnar
„Sigur í barnaflokki var ógleymanleg stund fyrir mig“
Barist til þrautar í Meistaradeild KS