Eyjólfur og Klerkur sigruðu Stjörnutölt
Eyjólfur Þorsteinsson og Klerkur frá Bjarnarnesi sigruðu Stjörnutölt sem var haldið í Skautahöllinni á Akureyri á laugardagskvöld.
Keppendur voru firnasterkir og stemningin mikil. Úrslit voru æsispennandi en á eftir Eyjólfi og Klerki hlutu þeir Sigurður Sigurðarson á Glæðu frá Þjóðólfshaga og Árni Björn Árnason á Furu frá Enni, sömu einkunn og varð að varpa hlutkesti til að ákvarða sætaröðun þeirra. Stjörnutöltssigurvegari frá því í fyrra, Barbara Wenzl og Dalur frá Háleggsstöðum urðu í fjórða sæti.
Hér eru úrslit kvöldsins.
A úrslit
1. Eyjólfur Þorsteinsson og Klerkur frá Bjarnarnesi – 8.21
2. Sigurður Sigurðarson og Glæða frá Þjóðólfshaga – 7.75
3. Árni Björn Pálsson og Fura frá Enni – 7.75
4. Barbara Wenzl og Dalur frá Háleggsstöðum – 7.71
5. Tryggvi Björnsson og Júpiter frá Egilsstaðabæ – 7.17
B úrslit
1. Tryggvi Björnsson og Júpiter frá Egilsstaðabæ – 7.42
2. Sölvi Sigurðarson og Nanna frá Halldórsstöðum – 7.33
3. Guðmundur Karl Tryggvason og Þruma frá Akureyri – 7.13
4. Baldvin Ari Guðlaugsson og Blær frá Kálfholti – 6.67
5. Óskar Sæberg og Fálki frá Ríp – 6.58
Nýtt Íslandshestanám í Svíþjóð
Styttu haustið með EiðfaxaTV