„Eyrnatappar ekki nýir af nálinni“
Mikill hávaði getur haft truflandi áhrif á hesta þar sem mikill mannfjöldi er kominn saman
„Eyrnatappar í hesta eru ekki nýir af nálinni og hafa í raun verið notaðir um langa tíð og þá sérstaklega á mótum þar sem áhorfendur eru mjög nærri brautinni líkt og gerist stundum innanhúss og á stórmótum“ Sagði Hulda Gústafsdóttir í dag þegar blaðamaður Eiðfaxa hafði samband við hana og spurði út í lögleiðingu á því að nota eyrnatappa í hesta hjá FEIF, en hún er ein af þeim sem situr í sportnefnd FEIF.
Í kjölfar fréttar um nýjar reglur hjá LH skapaðist mikil umræða um þetta á meðal hestamanna og því kjörið að heyra í Huldu og gefa henni færa á að útskýra.
„Eyrnatapparnir hafa ekki þau áhrif að hesturinn heyri ekki neitt og tapi þar með einu af skilningarvitum sínum heldur dempa þeir hljóðið og gera lífið þannig bærilegra fyrir hestinn í miklum hávaða. Í þeim tilfellum sem knapar hafa notað þennan búnað, hingað til, hafa þeir spurt yfirdómara um leyfi fyrir notkuninni en núna eru lögin skýr og heimila þessa notkun og taka þannig allan vafa af fyrir knapa og samræma á milli móta.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH