Heimild til að nota eyrnatappa meðal þess sem er nýtt af nálinni
Það gæti komið sér vel fyrir knapa að geta sett eyrnatappa í hesta á stórmótum þar sem mikil læti eru.
Á vefsíðu LH er tilkynning um það að þær breytingar sem samþykktar voru á landsþingi LH 2020 og á FEIF-þingi 2021 hafa verið færðar inn í lög og reglur LH sem birt eru á vef LH.
Helstu breytingar sem gerðar voru á lögunum á landsþingi eru eftirfarandi:
- Þátttökurétt á Íslandsmóti eiga efstu pör á stöðulista og fjöldi í hverri grein er takmarkaður.
- Í gæðingakeppni er ný keppnisgrein, gæðingatölt.
- Í gæðingakeppni er óheimilt að taka baug eða snúa við eftir að keppandi hefur lagt af stað í skeiðsýningu.
- Árangur knapa í innahússmótum telur til árangurs keppnisárs ef vallarstærð er að lágmarki 19x50m.
- Einkunn fyrir stjórnun og ásetu er gefin eftir hvert atriði í barnaflokki í gæðingakeppni.
- Auglýsa skal opin íþróttamót og sækja skal um dómara með 7 daga fyrirvara.
- Reglur um aðstæður til skeiðkappreiða til að lágmarka slysahættu.
- Ekki er keppt í A-flokki ungmenna á landsmótum.
- Í gæðingakeppni getur sami hestur aðeins keppt í einum flokki á sama móti.
Helstu breytingar sem gerðar voru á FEIF-þingi og voru færðar inn í lög LH eru eftirfarandi:
- FEIF líður ekki mismunun byggða á uppruna, kyni, þjóðerni, trúar-og stjórnmálaskoðunum, kynhneigð, húskaparstöðu eða á öðrum grunni.
- Reiðhjálmar skulu vera með CE vottun eða sambærilega vottun.
- Hnakkur skal vera staðsettur þannig að meiri hluti gjarðar hvíli á bringubeini og hnakkur sitji hvorki á herðum hests né þungi hans hvíli á spjaldhryggssvæði.
- Regla um hversu mikið má herða nefól á reiðmúl og það skuli mæla með sérstöku mælitæki (e. Noseband Taper Gauge).
- Í íþróttakeppni er sama hesti heimilt að hefja keppni oftar en einu sinni á sama móti í sömu keppnisgrein ef það er í mismunandi aldursflokkum.
- Heimild til að nota ýmsan aukabúnað í keppni eins og snjóbotna, ísfjaðrir, eyrnartappa og verndandi gel eða áburð ofan hófbotns (e. liquid bandage).
- Regla um hvernig skuli reikna samanlagðan sigurvegara ef hestar eru jafnir að stigum.
- Við ræsingu með rásbásum skulu básar vera lokaðir að framan og aftan.
- Skerpt er á orðalagi um ræsingu og niðurtöku í gæðingaskeiði.
- Ný grein PP3, léttara gæðingaskeið.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH