Eyrún Ýr Meistarinn 2025

Eyrún Ýr Pálsdóttir vann einstaklingskeppnina með 53 stig en það var skeiðið sem skar úr um sigurinn. Eyrún Ýr átti góðu gengi að fagna í deildinni í vetur og taldi stig í nærri því öllum greinum. Bestan árangur náði hún í skeiði í gegnum höllina og 150 m. skeiði en þar endaði hún í öðru sæti í báðum greinum
Ásmundur Ernir Snorrason endaði annar með 51 stig og þriðji Þorgeir Ólafsson með 50,5 stig.
Efstu fimm í einstaklingskeppninni
- Eyrún Ýr Pálsdóttir 53
- Ásmundur Ernir Snorrason 51
- Þorgeir Ólafsson 50,5
- Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir 44,5
- Jón Ársæll Bergmann 32,5