„Háði glímu fyrir lífi sínu sem folald“

  • 2. október 2026
  • Fréttir

Glíma frá Grund II og Daníel Jónsson á Landsmótinu í sumar. Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Kynbótahross ársins - Glíma frá Grund II

Alls voru þær 201 talsins, fimm vetra hryssurnar sem sýndar voru í fullnaðardómi á landinu í ár. Meðaltal aðaleinkunnar þeirra í hæsta dómi var 8,10 og hlutu 129 þeirra 8,00 eða hærra í aðaleinkunn og þar með 1. verðlaun.

Hæst dæmda hryssa ársins í þessum aldursflokki er Glíma frá Grund II sem hlaut í aðaleinkunn 8,65 á Landsmótinu á Hólum þar sem hún stóð efst í sínum flokki. Hún hlaut fyrir sköpulag 8,54, þar á meðal einkunnina 9,0 fyrir tvo sköpulagsþætti; bak og lend og fótagerð. Fyrir hæfileika hlaut hún 8,71 með 9,5 fyrir skeið og 9,0 fyrir bæði tölt og samstarfsvilja. Það var Daníel Jónsson sem sýndi Glímu.

Glíma uppstillt í kynbótadómi í hana heldur Bertha María Waagfjörð

Ræktandi hennar er Örn Stefánsson en hann á hryssuna ásamt Ólöfu Stefánsdóttur. Glíma er undan Glúmi frá Dallandi og Grund frá Grund II. „Markmiðið var að rækta heilsteyptan íslenskan gæðing, bæði fallegan og góðan,“ segir Örn um tilurð pörunar Grundar og Glúms.

Háði sína fyrstu glímu mánaðargömul

Litlu mátti muna að Glíma hefði farist sem folald. „Glíma heitir í höfuðið á ömmu sinni. Eftir að henni hafði verið bjargað úr holu sem folaldi má segja að hún hafi unnið sína fyrstu glímu og síðan þá hefur hún gengið á sigurbraut; vann Fjórðungsmót í Borgarnesi í flokki fjögurra vetra hryssa og svo fimm vetra flokkinn á Landsmótinu í sumar,“ útskýrir Örn.

„Það stóð virkilega tæpt að við hefðum misst hana þegar hún var bara ríflega mánaðargömul. Þannig var að vinur minn, Jónas Kristjánsson, fór upp í Grundarhólf til að athuga hvort hryssa frá honum væri köstuð. Þá tók hann eftir því að Grund, móðir Glímu, var ekki með folald með sér. Hann fór því að ganga um hólfið og kom þá auga á hana Glímu ofan í djúpri holu sem var við hliðina á kindagötu sem þar liggur. Jónas þurfti aðstoð til að ná henni upp úr holunni. Hún var greinilega búin að vera einhvern tíma þarna ofan í því Grund var farin frá henni. Glímu varð sem betur fer ekki meint af þessu en ég hafði miklar áhyggjur af því að þetta atvik myndi hafa varanleg áhrif á þroska hennar. En svo varð nú aldeilis ekki. Á ég Jónasi miklar þakkir að gjalda fyrir að hafa bjargað lífi Glímu.“

Glíma ásamt móður sinni Grund

Mikill fótaburður og ganghæfileikar

Samkvæmt Erni sá hann ekki endilega fyrir strax í uppvextinum að hún yrði sú stjarna sem hún er í dag: „Ég sá það ekki endilega fyrir. Hún var alltaf mjög stillt og heiðarleg í uppeldinu og það geislaði af hennar lund.“ Það var svo þegar tamning hófst sem hæfileikarnir komu í ljós.  „Hún var bara yfirveguð, viljug og þæg. Það var aldrei neitt vesen með hana og það kom strax í ljós að hún byggi yfir miklum fótaburði og ganghæfileikum. Ólafur Ásgeirsson tamdi hana á fjórða vetri og Þorgeir Ólafsson sýndi hana um vorið og á Fjórðungsmótinu í Borgarnesi með miklum glæsibrag. Haustið á fimmta vetri tók Daníel Jónsson svo við henni og sýndi hana í Hafnarfirði í vor og svo einnig á Landsmótinu á Hólum.“

Stærsta stundin í hrossaræktinni

Aðspurður hvernig hann horfi til baka til sumarsins og hvaða tilfinningar hafi bærst innra með honum þegar hann fylgdist með hryssunni í brautinni á Hólum segir Örn stundina hafa verið ógleymanlega: „Já, þetta var stærsta stundin mín í hrossarækt. Það var tár á hvarmi og svo var bara að rjúka af stað og knúsa Danna. Reyndar var Daníel búinn að segja að svona gæti farið ef allt gengi upp – takk Daníel Jónsson!“

Verðlaunaafhending 5.vetra hryssur LM2026. F.v. Ólafur Þórisson formaður Búgreinadeildar hrossabænda, Sigurður í Skollagróf sem afhenti Hremmsu bikarinn, Ólöf Stefánsdóttir, Örn Stefánsson og Daníel sem situr á Glímu Ljósmynd: Freydís Bergsdóttir

Næstu skref hjá Glímu eru þegar ákveðin. „Glíma er fylfull við Dalvari frá Efsta-Seli. Hvers vegna Dalvar? Það er ósköp einfalt svar við því: Ég er í hrossarækt!“ segir Örn að lokum um valið, og framtíðarplönin eru skýr: „Að framleiða íslenska gæðinga í fremstu röð.“

Daníel Jónsson heldur í Glímu og Bertha María í Dalvar

10 hæst dæmdu 5 vetra hryssurnar

1. Glíma frá Grund II – 8,65
2. Fljóð frá Syðri-Gegnishólum – 8,62
3. Rögn frá Feti – 8,60
4. Rauðanótt frá Miðhúsum – 8,55
5–7. Snilld frá Breiðholti í Flóa – 8,54
5–7. Skjóna frá Tvennu – 8,54
5–7. Þruma frá Dýrfinnustöðum – 8,54
8–9. Huld frá Fákshólum – 8,51
8–9. Heba frá Ragnheiðarstöðum – 8,51
10–11. Melódía frá Austurási – 8,50
10–11. Bríet frá Sumarliðabæ 2 – 8,50

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link