Fákaflug 2012
Fákaflug 2012 verður haldið á Vindheimamelum dagana 3.- 5.ágúst n.k.
„Keppt verður í A-flokk, B-flokk, ungmennaflokk, unglingaflokk, barnaflokk, 100m, 150m og 250m skeiði (rafrænar tímatökur í öllum greinum) og tölti. Sérstök forkeppni, 2-3 inná í einu.
Skráningar skal senda á netfangið [email protected] fyrir kl.16.00 miðvikudaginn 1. ágúst. Gefa þarf upp keppnisgrein, nafn og kennitölu knapa og IS númer hrossins.
Skráningargjald er kr. 3.000,- á hverja skráningu og skal það greiðast inn á reikning 161-26-1630, kt.520705-1630 með nafni knapa í skýringu og senda staðfestingu í tölvupósti á [email protected].
Mótið hefst seinnipart föstudagsins á forkeppni í tölti og keppni í skeiði. Dagskrá auglýst nánar síðar.
Athugið að frítt er inn á mótssvæðið,“ segir í tilkynningu frá mótshöldurum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH