Hestamannafélagið Fákur Fákur sendir magnaða gæðinga á Landsmót

  • 25. maí 2026
  • Fréttir

Kastor frá Garðshorni á Þelamörk og Konráð Valur stóðu efstir í úrslitum í A-flokki gæðinga. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka

Helstu úrslit frá Gæðingamóti og úrtöku Hestamannafélagsins Fáks

Gæðingamót og úrtaka Hestamannafélagsins Fáks fór fram um helgina en um var að ræða fyrstu úrtöku ársins fyrir Landsmót Hestamanna. Fákur er fjölmennasta hestamannafélag landsins og á rétt á því að senda 16 þátttakendur í hvern og einn flokk í gæðingakeppni. Margir frábærir gæðingar og knapaur komu fram í úrtökunni sem líklegt er að blandi sér í baráttu um sigur á Landsmóti í sumar.

Boðið var upp á fyrri og seinni umferð þar sem fyrri umferð gilti til úrslita. Knaparnir gátu þó tryggt sér þátttökurétt með árangri í seinni umferð líkt og tíðkast hjá mörgum hestamannafélögum.

Mótið var sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV og er einnig aðgengilegt þar nú.

A-Flokkur

Í forkeppni var það Seðill frá Árbæ sýndur af Árna Birni Pálssyni sem hlaut hæsta einkunn, 8,82. Þeir mættu hins vegar ekki til úrslita en í þeim var það Kastor frá Garðshorni á Þelamörk sem efstur stóð með einkunnina 9,00 með knapa sínum Konráði Val Sveinssyni. Í öðru sæti varð Ambassador frá Bræðraá og Sigurður Vignir Matthíasson með 8,73 og í þriðja sætinu Seiður frá Hólum og Sveinn Ragnarsson með 8,55.

A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Konráð Valur Sveinsson 9,00
2 Ambassador frá Bræðraá Sigurður Vignir Matthíasson 8,73
3 Seiður frá Hólum Sveinn Ragnarsson 8,55
4 Reyr frá Hárlaugsstöðum 2 Anna Björk Ólafsdóttir * 8,31
5 Gná frá Stóru-Mástungu 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson 8,19
6 Blika frá Hrauni Bjarni Sveinsson 8,00
7-8 Nagli frá Flagbjarnarholti Sigurbjörn Bárðarson 0,00
7-8 Viljar frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 0,00
B-flokkur

Í flokki klárhesta lítur út fyrir að Fákur sendi einnig sterka sveit norður í Hjaltadalinn. Efst eftir forkeppni var Tesla frá Ásgarði vestri sýnd af Jóni Herkovic með einkunnina 8,75. Þau unnu einnig A-úrslit og þá með einkunnina 8,94. Í öðru sæti í úrslitum varð Hylur frá Flagbjarnarholti með 8,84 í einkunn sýndur af Teiti Árnasyni og í þriðja sæti varð Rökkvi frá Heysholti með 8,70 setinn af Heklu Katharínu Kristinsdóttur

A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Tesla frá Ásgarði vestri Jón Herkovic 8,94
2 Hylur frá Flagbjarnarholti Teitur Árnason 8,84
3 Rökkvi frá Heysholti Hekla Katharína Kristinsdóttir 8,70
4 Steinn frá Stíghúsi Þorgeir Ólafsson 8,68
5 Loki frá Reykjavík Sigurður Vignir Matthíasson 8,65
6 Óskaneisti frá Kópavogi Kári Steinsson 8,62
7 Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson 8,52
8 Fókus frá Eldborg Bjarni Sveinsson 8,42
B-flokkur áhugamanna

B-flokkur áhugamanna er í fyrsta skipti á dagskrá Landsmóts og var því úrtaka í þeim flokki hjá Fáki. Að lokinni forkeppni var það Vinur frá Sauðárkróki og Hrafnhildur Jónsdóttir sem efst stóðu með 8,59 í einkunn. Þau héldu sinni forystu í A-úrslitum og unnu þau. Önnur varð Kata frá Korpu og Garðar Hólm Birgisson með 8,47 og í þriðja sætinu Harpa frá Horni og Erla Katrín Jónsdóttir með 8,41.

A úrslit
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Vinur frá Sauðárkróki Hrafnhildur Jónsdóttir 8,62
2 Andvari frá Skipaskaga Birna Ólafsdóttir 8,47
3 Harpa frá Horni Erla Katrín Jónsdóttir 8,41
4 Alexandra frá Kópavogi Kristín Ísabella Karelsdóttir 8,38
5 Hróðmar frá Vatnsleysu Rúnar Bragason 8,19
6 Hlekkur frá Lyngholti Ólafur Ágúst Hraundal 8,18
B-flokkur ungmenna

Í B-flokki ungmenna var efst eftir forkeppni Lilja Rún Sigurjónsdóttir á Draupni frá Dimmuborg með 8,63 í einkunn. Annar var Matthías Sigurðsson á Tuma frá Jarðbrú með 8,59. Lilja mætti ekki á Draupni til úrslita en þar var það Tumi frá Jarðbrú og Matthías sem efstir stóðu með 8,99 en þeir unnu þennan flokk á Landsmóti 2024 og geta því varið titil sinn á Landsmót í sumar. Í öðru sæti í úrslitum varð Eva Kærnested á Styrki frá Skák með 8,74 og í þriðja sæti var Ragnar Snær Viðarsson á Hinriki frá Hásæti með 8,58.

A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú 8,99
2 Eva Kærnested Styrkur frá Skák 8,74
3 Ragnar Snær Viðarsson Hinrik frá Hásæti 8,58
4 Sigurbjörg Helgadóttir Skuggabaldur frá Stórhólma 8,57
5 Selma Leifsdóttir Eldey frá Mykjunesi 2 8,51
6 Sigrún Helga Halldórsdóttir Stoð frá Klömbrum 8,42
7 Milla Rydström Logan Glódís frá Brekkum 8,33
8 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Spenna frá Skriðu 6,37
A-flokkur ungmenna

Í þessum flokki var það Selma Leifsdóttir sem efst stóð að lokinni fyrri umferð á Dal frá Meðalfelli með 8,41 í einkunn. Hún stóð einnig efst í úrslitum með 8,33. Önnur varð Selma Dóra Þorsteinsdóttir á Tý frá Hólum og í þriðja sæti Bertha Liv Bergstað á Sporði frá Ytra-Dalsgerði

A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Selma Leifsdóttir Dalur frá Meðalfelli 8,33
2 Selma Dóra Þorsteinsdóttir Týr frá Hólum 8,10
3 Bertha Liv Bergstað Sporður frá Ytra-Dalsgerði 7,37
Unglingaflokkur

Í unglingaflokki var Viktor Leifsson efstur í forkeppni á Biskupi frá Hólum með einkunnina 8,55. Í A-úrslitum var það hins vegar Gabríel Liljendal Friðfinnsson á Ólsen frá Egilsá sem sigraði með 8,79. Annar varð Sigurður Ingvarsson á Liljari frá Varmalandi með 8,76 og í þriðja sæti Bertha Liv Bergstað á Hólma frá Kaldbak með 8,65 í í einkunn.

A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Gabríel Liljendal Friðfinnsson Ólsen frá Egilsá 8,79
2 Sigurður Ingvarsson Liljar frá Varmalandi 8,76
3 Bertha Liv Bergstað Hólmi frá Kaldbak 8,65
4 Viktor Leifsson Biskup frá Ólafshaga 8,60
5 Elísabet Emma Björnsdóttir Aðgát frá Víðivöllum fremri 8,52
6 Björney Anna Aronsdóttir Hljómur frá Borgarlandi 8,30
7 Jóna Kolbrún Halldórsdóttir Rektor frá Melabergi 8,07
8 Sigríður Birta Guðmundsdóttir Maístjarna frá Neðra-Seli 8,04
Barnaflokkur

Í barnaflokki gæðinga var það Helga Rún Sigurðardóttir á Safír frá Mosfellsbæ sem hæsta einkunn hlaut í forkeppni 8,75. Í úrslitum var það svo Valdís Mist Eyjólfsdóttir sem vann á Hnotu frá Þingnesi með 8,81 í einkunn. Í öðru sæti varð Svala Björk Hlynsdóttir á Bríeti frá Auðsholtshjáleigu með 8,72 og í þriðja sæti Alexander Þór Hjaltason á Tý frá Akranesi með 8,63.

A úrslit
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Valdís Mist Eyjólfsdóttir Hnota frá Þingnesi 8,81
2 Svala Björk Hlynsdóttir Bríet frá Auðsholtshjáleigu 8,72
3 Alexander Þór Hjaltason Týr frá Akranesi 8,63
4 Embla Sirén Matthíasdóttir Fluga frá Garðabæ 8,62
5-6 Oliver Sirén Matthíasson Gróa frá Þjóðólfshaga 1 8,56
5-6 Helga Rún Sigurðardóttir Safír frá Mosfellsbæ 8,56
7 Emilía Íris Ívarsd. Sampsted Bjarmi frá Akureyri 8,41
8 Hrafnar Freyr Leósson Kopar frá Álfhólum 6,87
Efstu hestar í A-flokki miðað við báðar umferðir
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Seðill frá Árbæ Árni Björn Pálsson 8,82
2 Kastor frá Garðshorni á Þelamörk Konráð Valur Sveinsson 8,70
3 Nagli frá Flagbjarnarholti Sigurbjörn Bárðarson 8,69
4-5 Hergeir frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,68
4-5 Rúrik frá Halakoti Viðar Ingólfsson 8,68
6 Silfurtoppur frá Reykjavík Matthías Sigurðsson 8,54
7 Viljar frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,54
8 Hvirfill frá Mánaskál Matthías Sigurðson 8,51
9 Bláfeldur frá Kjóastöðum 3 Sigurður Vignir Matthíasson 8,49
10 Vigur frá Kjóastöðum 3 Sigurður Vignir Matthíasson 8,49
11 Dikta frá Fornustöðum Guðmundur Björgvinsson 8,48
12 Ambassador frá Bræðraá Sigurður Vignir Matthíasson 8,46
13 Auga-Steinn frá Árbæ Henna Johanna Sirén 8,44
14 Seiður frá Hólum Sveinn Ragnarsson 8,42
15 Rödd frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,39
16 Dreki frá Meðalfelli Birta Ingadóttir 8,38
Efstu hestar í B-flokki hjá Fáki miðað við báðar umferðir
1 Tesla frá Ásgarði vestri Jón Herkovic 8,75
2 Jarl frá Skúfsstöðum Eyrún Ýr Pálsdóttir 8,71
3 Steinn frá Stíghúsi Þorgeir Ólafsson 8,67
4 Hugur frá Hólabaki Hinrik Bragason 8,67
5 Hylur frá Flagbjarnarholti Teitur Árnason 8,66
6 Sólon frá Ljósalandi í Kjós Hlynur Guðmundsson 8,65
7 Hamar frá Varmá Hinrik Bragason 8,61
8 Rökkvi frá Heysholti Hekla Katharína Kristinsdóttir 8,59
9 Egill Rauði frá Stóra-Hofi Ævar Örn Guðjónsson 8,56
10 Óskaneisti frá Kópavogi Kári Steinsson 8,54
11 Loki frá Reykjavík Sigurður Vignir Matthíasson 8,53
12 Amíra frá Hólum Selina Bauer 8,50
13 Sigur frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,50
14 Demantur frá Vakurstöðum Teitur Árnason 8,48
15 Skjöldur frá Stóru-Mástungu 2 Guðmundur Ásgeir Björnsson 8,47
16 Samba frá Auðsholtshjáleigu Þórdís Erla Gunnarsdóttir 8,46
Efstu pör í B-flokki áhugamanna
Sérstök forkeppni
Sæti Hross Knapi Einkunn
1 Vinur frá Sauðárkróki Hrafnhildur Jónsdóttir 8,59
2 Kata frá Korpu Garðar Hólm Birgisson 8,46
3 Andvari frá Skipaskaga Birna Ólafsdóttir 8,41
4 Maísól frá Víðistöðum Katrín Sveinsdóttir 8,36
5 Alexandra frá Kópavogi Kristín Ísabella Karelsdóttir 8,34
6 Hróðmar frá Vatnsleysu Rúnar Bragason 8,31
7 Hlekkur frá Lyngholti Ólafur Ágúst Hraundal 8,19
8 Harpa frá Horni Erla Katrín Jónsdóttir 8,17
Efstu pör í B-flokki ungmenna miðað við báðar umferðir
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Draupnir frá Dimmuborg 8,63
2 Matthías Sigurðsson Tumi frá Jarðbrú 8,59
3 Eva Kærnested Styrkur frá Skák 8,55
4 Ragnar Snær Viðarsson Hinrik frá Hásæti 8,55
5 Sigurbjörg Helgadóttir Skuggabaldur frá Stórhólma 8,53
6 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Spenna frá Skriðu 8,53
7 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti 8,50
8 Selma Leifsdóttir Eldey frá Mykjunesi 2 8,38
9 Ragnar Snær Viðarsson Stilla frá Kvíarhóli 8,37
10 Selma Dóra Þorsteinsdóttir Orka frá Búðum 8,31
11 Milla Rydström Logan Glódís frá Brekkum 8,31
12 Camilla Dís Ívarsd. Sampsted Litríkur frá Miðengi 8,27
13 Sigrún Helga Halldórsdóttir Stoð frá Klömbrum 8,27
14 Unnur Erla Ívarsdóttir Víðir frá Tungu 8,24
15 Hrafnhildur Klara Ægisdóttir Svenni frá Reykjavík 8,20
16 Hekla Eyþórsdóttir Garri frá Strandarhjáleigu 8,19
Efstu hestar í A-flokki ungmenna miðað við báðar umferðir
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Matthías Sigurðsson Silfurtoppur frá Reykjavík 8,46
2 Selma Leifsdóttir Dalur frá Meðalfelli 8,41
3 Matthías Sigurðsson Hvirfill frá Mánaskál 8,35
4 Bertha Liv Bergstað Sporður frá Ytra-Dalsgerði 8,32
5 Ragnar Snær Viðarsson Svartúlfur frá Hákoti 8,28
6 Camilla Dís Ívarsd. Sampsted Vordís frá Vatnsenda 8,19
7 Eva Kærnested Jón forseti frá Hesjuvöllum 8,18
8 Unnur Erla Ívarsdóttir Stillir frá Litlu-Brekku 8,13
9 Selma Dóra Þorsteinsdóttir Týr frá Hólum 8,10
10 Unnur Erla Ívarsdóttir Stillir frá Litlu-Brekku 8,01
11 Svala Björk Hlynsdóttir Þóra Dís frá Auðsholtshjáleigu 7,86
12 Sigrún Helga Halldórsdóttir Sólon frá Bræðraá 7,80
13 Eva Kærnested Jón forseti frá Hesjuvöllum 7,77
14 Selma Dóra Þorsteinsdóttir Týr frá Hólum 7,75
15 Sigrún Helga Halldórsdóttir Sólon frá Bræðraá 7,71
16 Camilla Dís Ívarsd. Sampsted Vordís frá Vatnsenda 7,56
Efstu pör í unglingaflokki miðað við báðar umferðir
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Viktor Leifsson Biskup frá Ólafshaga 8,55
2 Bertha Liv Bergstað Hólmi frá Kaldbak 8,48
3 Sigurður Ingvarsson Liljar frá Varmalandi 8,46
4 Fríða Hildur Steinarsdóttir Frami frá Hjarðarholti 8,41
5 Björney Anna Aronsdóttir Hljómur frá Borgarlandi 8,40
6 Elísabet Emma Björnsdóttir Aðgát frá Víðivöllum fremri 8,38
7 Gabríel Liljendal Friðfinnsson Ólsen frá Egilsá 8,35
8 Viktor Leifsson Glaður frá Mykjunesi 2 8,28
9 Katrín Diljá Andradóttir Valur frá Brekkubæ 8,27
10 Súsanna Sóley Steinarsdóttir Hringadrottning frá Kolsholti 3 8,25
11 Jóna Kolbrún Halldórsdóttir Rektor frá Melabergi 8,23
12 Björney Anna Aronsdóttir Már frá Árbæ 8,21
13 Sigríður Birta Guðmundsdóttir Maístjarna frá Neðra-Seli 8,11
14 Katrín Diljá Andradóttir Valur frá Brekkubæ 7,66
Efstu pör í barnaflokki miðað við báðar umferðir
Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Helga Rún Sigurðardóttir Safír frá Mosfellsbæ 8,75
2 Valdís Mist Eyjólfsdóttir Stormfaxi frá Álfhólum 8,65
3 Valdís Mist Eyjólfsdóttir Hnota frá Þingnesi 8,57
4 Embla Sirén Matthíasdóttir Fluga frá Garðabæ 8,55
5 Sólbjört Elvira Sigurðardóttir Eldþór frá Hveravík 8,55
6 Birna Rós Steinarsdóttir Alma frá Breiðholti í Flóa 8,55
7 Svala Björk Hlynsdóttir Bríet frá Auðsholtshjáleigu 8,52
8 Oliver Sirén Matthíasson Öfgi frá Káratanga 8,52
9 Alexander Þór Hjaltason Týr frá Akranesi 8,48
10 Hrafnar Freyr Leósson Meyvant frá Álfhólum 8,47
11 Líf Einarsdóttir Isenbuegel Mánasteinn frá Hafnarfirði 8,47
12 Hrafnar Freyr Leósson Kopar frá Álfhólum 8,46
13 Oliver Sirén Matthíasson Gróa frá Þjóðólfshaga 1 8,46
14 Emilía Íris Ívarsd. Sampsted Bjarmi frá Akureyri 8,46
15 Valdís Mist Eyjólfsdóttir Hnota frá Þingnesi 8,45
16 Birna Rós Steinarsdóttir Alma frá Breiðholti í Flóa 8,45
17 Katrín Edda Viðarsdóttir Kveikja frá Kvíarhóli 8,44
18 Líf Einarsdóttir Isenbuegel Ísak frá Laugamýri 8,44
19 Birna Rós Steinarsdóttir Þyrnir frá Enni 8,43
20 Alexander Þór Hjaltason Tónn frá Hestasýn 8,43

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link