„Fann fyrir sjálfskapaðri pressu“
Rósa Birna Þorvaldsdóttir gerði sér lítið fyrir og lék sama leik og í fyrra þegar hún stóð efst í fjórgangi í Uppsveitadeildinni á Frá frá Sandhóli. „Mér líður mjög vel“ Segir hún kampakát með sigurinn. „Ég fann fyrir innri pressu fyrir kvöldið, algjörlega sjálfskapaðri, því mig langaði að gera mitt besta og vonaði að það dygði til sigurs, mér var þó fullljóst að margir sterkir keppendur biðu mín og að þetta yrði erfitt.“ Hefur Rósa Birna á orði þegar blaðamaður Eiðfaxa spyr hana eftir því hvort hún hafi fundið fyrir pressu í kvöld sem sigurvegari síðasta árs.
Frár er undan Loka frá Selfossi og Freyju frá Hafnarfirði, einkunn þeirra í úrslitum var 7,33. „Frár er úr ræktun foreldra minna. Ég hef því fylgst með honum frá fæðingu og hann hefur alltaf verið einstök týpa, stór og mikill persónuleiki. Hann er minn stærsti kennari og mér finnst ég mjög heppin að fá að hafa hann en við höfum farið í gegnum ýmislegt saman og það hefur verið mjög lærdómsríkt.“
Hvernig lýst Rósu Birnu á framhaldið á Uppsveitadeildina en keppni í fjórgangi var fyrsta greinin af fjórum, sem haldnar eru á þremur kvöldum. „Mér lýst vel á þetta. Það er alltaf góður andi á Flúðum sama hvort það er þetta mót eða annað. Ég er ágætlega hestuð fyrir framhaldið með ung og skemmtileg hross. Ég er partur af liði Josera og við erum með frábæra liðsheild og ætlum að taka ákvörðun fyrir hvert mót um það hver keppir í sátt og samvinnu.“
Þegar blaðamaður heyrði í Rósu Birnu var hún nýkomin heim frá Flúðum og fagnaður á næsta leyti, Eiðfaxi óskar henni til hamingju með sigurinn.
Hér má sjá úrslit kvöldsins og stöðuna í stigakeppninni:
TEAM DENNI DESIGN var afgerandi stigahæsta lið kvöldsins en allir þrír knapar liðsins voru í úrslitum.
A ÚRSLIT
- JOSERA Rósa Birna Þorvaldsdóttir og Frár frá Sandhól 7,33
- STORM RIDER Þórarinn Ragnarsson og Leikur frá Vesturkoti 7,23
- TEAM DENNI DESIGN Ragnhildur Haraldsdóttir og Úlfur frá Mosfellsbæ 7,20
- TEAM DENNI DESIGN Ólöf Rún Guðmundsdóttir og Snót frá Laugardælum 6,67
- MEISTARI LOFTUR Þorgils Kári Sigurðsson og Fákur frá Kaldbak 6,63
B ÚRSLIT
- MEISTARI LOFTUR Þorgils Kári Sigurðsson og Fákur frá Kaldbak 6,77
- STORM RIDER Brynja Amble Gísladóttir og Goði frá Ketilsstöðum 6,67
- FELLSKOTSHESTAR Daníel Larsen og Sókrates frá Blesastöðum 1A 6,63
- TEAM DENNI DESIGN Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli 6,23
- FELLSKOTSHESTAR Þorgeir Ólafsson og Snilld frá Fellskoti 6,03
STAÐAN Í LIÐAKEPPNI EFTIR FJÓRGANG
- TEAM DENNI DESIGN 42 STIG
- STORM RIDER 31,5 STIG
- FELLSKOTSHESTAR 31 STIG
- JOSERA 25,5 STIG
- MEISTARI LOFTUR 25 STIG
- ÁRBÆJARHJÁLEIGA II 16 STIG
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH