„Þar verður fas og fótaburður því lofum við”
Dama frá Hrafnagili og Hans Kjerúlf
Eiðfaxi heldur áfram að kynnast hrossaræktarbúum um land allt. Hrossaræktarbúið Hrafnagil er í Eyjafirði. Þar búa hjónin Jón Elvar Hjörleifsson og Berglind Kristinsdóttir ásamt 5 börnum.
“Hér búum við með 160 kýr og önnur geldneyti 230 stk, 70 hross og 60 kindur og nokkrar hænur sem drulla um allt. Stærð jarðanna okkar er um 1000 ha og þar af Hrafnagil um 600 ha. Berglind ílengdist fyrir norðan þegar hún var hér í verknámi á næsta bæ og sá mig berann að ofan í girðingarvinnu við afleggjarann,” segir Jón Elvar.
Í sumar fengu þau 15 folöld þar af 11 merfolöld undan Skaganum frá Skipaskaga, Sindra frá Hjarðartúni, Hulinn frá Breiðstöðum, Hákoni frá Ragnheiðarstöðum, Rafnari frá Hrafnagili og Hraunari frá Hrafnagili en í sumar notuðu þau Loka frá Selfossi, Kjerúlf frá Kollaleiru, Fenri frá Finnastöðum og þá Hraunar og Korp frá Hrafnagili.
“Það voru sýnd þó nokkur hross frá okkur í sumar. Hrímnir og Hrannar báðir frá Hrafnagili voru sýndir erlendis og gekk vel. Rafnar sem er undan Söru frá Víðinesi fékk 8,21 í aðaleinkunn 5 vetra. Hann hefur allt til að bera og einstakt geðslag. Dama og Hrafney voru sýndar af Hans Kjerúlf og gekk vel. Frábærar hryssur og Hans Kjerúlf á fáa sína líka í hnakknum. Hann sýndi Giljagaur líka í 8,07 en hann er 4 vetra undan Fenri frá Feti og Báru-Brá frá Litlu-Sandvík. Við eigum hann með Hansa. Giljagaur hlaut 8,62 fyrir sköpulag og 8,5 fyrir allt í hæfileikum nema skeið, fet og hægt tölt. Hann á framtíðina fyrir sér og mikill Höfða-Gustur í ættartrénu,” segir Jón Elvar inntur eftir því hvort mikið hafi verið sýnt frá þeim í sumar.

Giljagaur 4 v
“Við eigum líka hestagullið hana Fenju, fjögurra vetra, Fenrisdóttur undan Fífu frá Hrafnagili. Hún fékk 8,5 tölt og fegurð í reið og 9,0 fyrir vilja. Líka sýnd af Hans Kjerúlf en hann og Elvar Logi gerðu þetta vel sama á Hólum í ágúst. Ég heyrði að Karl Áki nagaði sig núna að hafa ekki notað Fenri frá Feti,” bætir hann við.
Frumtamningar eru byrjaðar í Hrafnagili og eru þau með 8 hross undan Auði frá Lundum í tamningu. Þau hafa notað Auð mikið og hafa verið ánægð með það sem þau fá undan honum. “Hann hefur virkað vel hjá okkur og virðist ætla halda því áfram. Þrír graðhestar eru búnir með mánuð í tamingju hjá Camillu Hoj og líta vel út. Einn eigum við með Helgu Unu, hann Hrók, og er hann frekar efnilegur sem og Miðill undan Gígju frá Búlandi. Þar er mikill fótaburður enda Auður engum líkur á LM 2008 og hafi einhvern tíman átt að nota 10 fyrir fegurð í reið var það þar.”
Það er greinilegt að það er enginn bilbugur í hrossaræktinni á þessum bænum og nóg um að vera. Í vetur verða hross frá þeim hjá Hans Kjerúlf, Daníel Jónssyni og Berthu Maríu Waagfjörð, Helgu Unu Björnsdóttur og Jakobi Svavari Sigurðssyni og Ásmundir Erni Snorrasyni og Stellu Sólveigu Pálmarsdóttur. “Við ætlum að hafa hross hjá Hans Kjerúlf í vetur og Danna og Bertu líka, Berta hefur svo falleg augu, annað en Daníel. Við eigum síðan stóðhestinn með Helgu Unu og verður hann hjá henni. Það er gaman að spjalla við Helgu og Jakob um hross. Við verðum líka með Hraunar, Lokason, hjá Ása og Stellu. Svo má bæta því við að við erum búin að fá lánaðar þrjár hryssur næsta ár sem fóstrur frá vini okkar Erni Stefánssyni, skipstjóra, en hann er hógværasti maður sem ég þekki og þekki ég nú nokkra hógværa,” segir Jón Elvar á lokum en þau eru full tilhlökkunar til Landsmóts á næsta ári. Þar sem þau stefna á að vera með ræktunarbússýningu. “Við reiknum með að rústa kosningunni eins og folaldasýningunum heima í héraði ef við verðum valin inn. Þar verður fas og fótaburður því lofum við.”

Rafnar frá Hrafnagili og Hans Kjerúlf
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH