Félagsmót Léttfeta
Félagsmót Léttfeta verður haldið á félagssvæði Léttfeta (Fluguskeiði) á Sauðárkróki laugardaginn 18. júní og hefst það kl:10:00 á forkeppni í B-flokki.
Skráningu lýkur á fimmtudagskvöldið 16. júní. Skráningar eru hjá Guðmundi á [email protected] og hjá Stefaníu í 847-9158. Skráningagjaldið er 1500 kr. og greiðist inn á reikning félagsins 0310-26-32140, kt.430269-7049. Vinsamlegast setja kennitölu knapa í skýringu og senda staðfestingu á [email protected].
Keppnisgreinar: A og B-flokkur, barna-, unglinga- og ungmennaflokkar og 100m skeið.
Gefa þarf upp keppnisgrein, nafn og kennitölu knapa og IS númer hests við skráningu.
Mótanefnd Léttfeta
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH