Feykir og Tígull jafnir í efstu sætum í 5 vetra flokki

  • 6. ágúst 2011
  • Fréttir
Feykir og Tígull jafnir í efstu sætum í 5 vetra flokki

Tígull frá Kleiva og Feykir frá Háholti eru með sömu aðaleinkunn, 8,38 eftir síðari umferð kynbótadóma í flokki 5 vetra stóðhesta. Dómari ákvað að Tígull hlyti fyrsta sæti flokksins, og Feykir annað sætið.

Engar breytingar urðu á dómi Feykis á þessari seinni sýningu og lýkur þátttöku með 8,66 fyrir byggingu og 8,19 fyrir hæfileika. Tígull, sem kemur frá Noregi, hækkaði hins vegar úr 5,0 í 6,0 fyrir skeið og er með 8,61 fyrir byggingu og 8,23 fyrir hæfileika.

Í þriðja sæti flokksins varð þýskfæddur hestur Ísleifur vom Lipperthof með 8,13 í aðaleinkunn.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link