Fimm hross með lágmörk eftir sýningar dagsins

  • 9. maí 2011
  • Fréttir
Fimm hross með lágmörk eftir sýningar dagsins

Nú fara fram kynbótasýningar á Brávöllum á Selfossi. Alls eru 50 hross skráð til dóms og voru 28 þeirra sýnd í dag.

Fimm hross hlutu landsmótslágmörk, fjórir stóðhestar og ein hryssa. Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu hækkaði einkunn sína frá fyrri dómum í flokki 6 vetra stóðhesta, auk þess sem tveir 4 vetra hestar frá Auðsholtshjáleigu, Hrafnar og Kristall, hlutu góðar einkunnir. Þá hlaut dóttir Gára frá Auðsholtshjáleigu, 5 vetra hryssan Ljósmynd frá Stekkholti, aðaleinkunnina 8,05 í flokki 5 vetra hryssa.

En glæsilegasta árangur dagsins náði klárhesturinn Korgur frá Ingólfshvoli í flokki 5 vetra stóðhesta. Korgur vakti athygli á ísmótinu „Þeir allra sterkustu“ þar sem hann var kynntur ásamt fleiri ungum stóðhestum og þótti hann fara sérstaklega vel hjá knapa sínum Artemisiu Bertus. Hann hlaut í aðaleinkunn 8,41, einkunnina 9 fyrir tölt, brokk, stökk, vilja og geðslag, hófa og fet, og 9,5 fékk hann fyrir fegurð í reið og hægt stökk.

Sýning hefst aftur á morgun kl. 9 en dagskrá og hollaröðun hrossa má nálgast hér.

Meðfylgjandi eru dómar hrossa sem hlutu landsmótslágmörk í dag.

6 vetra stóðhestar

IS2005187018 Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu
Örmerki: 352098100008400
Litur: 1240 Rauður/ljós- tvístjörnótt
Ræktandi: Gunnar Arnarson ehf.
Eigandi: Gunnar Arnarson ehf.
F.: IS1999188801 Þóroddur frá Þóroddsstöðum
Ff.: IS1987187700 Oddur frá Selfossi
Fm.: IS1984287011 Hlökk frá Laugarvatni
M.: IS1995287055 Trú frá Auðsholtshjáleigu
Mf.: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Mm.: IS1988257700 Tign frá Enni
FORSKOÐUNARDÓMUR
Vorsýning á Selfossi
Mál (cm): 146 – 133 – 141 – 66 – 148 – 40 – 47 – 43 – 6,6 – 31,5 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 9,1 – V.a.: 8,9
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,5 = 8,50
Hæfileikar: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 = 8,22
Aðaleinkunn: 8,33      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,0
Sýnandi: Bylgja Gauksdóttir

5 vetra stóðhestar

IS2006187026 Korgur frá Ingólfshvoli
Örmerki: 352206000062825
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Ræktandi: Björg Ólafsdóttir
Eigandi: Artemisia Constance Bertus, Björg Ólafsdóttir
F.: IS1999181675 Leiknir frá Vakurstöðum
Ff.: IS1985157020 Safír frá Viðvík
Fm.: IS1988258049 Lyfting frá Ysta-Mó
M.: IS1998287026 Korga frá Ingólfshvoli
Mf.: IS1986186020 Geysir frá Gerðum
Mm.: IS1981286006 Gola frá Gerðum
FORSKOÐUNARDÓMUR
Vorsýning á Selfossi
Mál (cm): 140 – 130 – 135 – 65 – 141 – 36 – 46 – 41 – 6,6 – 29,5 – 18,5
Hófa mál: V.fr.: 9,2 – V.a.: 8,6
Sköpulag: 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 9,0 – 8,5 = 8,39
Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 5,0 – 9,0 – 9,0 – 9,5 – 9,0 = 8,42
Aðaleinkunn: 8,41      Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 9,5
Sýnandi: Artemisia Constance Bertus

4 vetra stóðhestar

IS2007187017 Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu
Örmerki: 352098100017200
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Ræktandi: Þórdís Erla Gunnarsdóttir
Eigandi: Gunnar Arnarson, Þórdís Erla Gunnarsdóttir
F.: IS1998184713 Aron frá Strandarhöfði
Ff.: IS1989165520 Óður frá Brún
Fm.: IS1992287057 Yrsa frá Skjálg
M.: IS1995287053 Gígja frá Auðsholtshjáleigu
Mf.: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Mm.: IS1982287025 Hrafntinna frá Auðsholtshjáleigu
FORSKOÐUNARDÓMUR
Vorsýning á Selfossi
Mál (cm): 143 – 130 – 139 – 67 – 146 – 39 – 49 – 43 – 6,5 – 30,0 – 20,0
Hófa mál: V.fr.: 8,9 – V.a.: 8,0
Sköpulag: 7,5 – 8,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 – 8,0 – 8,5 – 8,5 = 8,09
Hæfileikar: 8,5 – 7,0 – 7,0 – 8,0 – 8,5 – 8,5 – 8,0 = 7,99
Aðaleinkunn: 8,03      Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Þórdís Erla Gunnarsdóttir

IS2007187053 Kristall frá Auðsholtshjáleigu
Örmerki: 352098100017260
Litur: 3500 Jarpur/milli- einlitt
Ræktandi: Eyvindur Hrannar Gunnarsson
Eigandi: Eyvindur Hrannar Gunnarsson
F.: IS1996157330 Tígull frá Gýgjarhóli
Ff.: IS1984151101 Stígandi frá Sauðárkróki
Fm.: IS1983257064 Spæta frá Gýgjarhóli
M.: IS1995287052 Framtíð frá Auðsholtshjáleigu
Mf.: IS1984165012 Hektor frá Akureyri
Mm.: IS1987287099 Freyja frá Auðsholtshjáleigu
FORSKOÐUNARDÓMUR
Vorsýning á Selfossi
Mál (cm): 142 – 131 – 137 – 65 – 141 – 36 – 46 – 41 – 6,4 – 30,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 9,0 – V.a.: 8,2
Sköpulag: 8,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 7,0 – 7,5 – 8,0 – 8,0 = 8,19
Hæfileikar: 9,0 – 8,0 – 5,0 – 9,0 – 9,0 – 9,0 – 7,0 = 8,08
Aðaleinkunn: 8,12      Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 8,5
Sýnandi: Bylgja Gauksdóttir

5 vetra hryssur

IS2006282220 Ljósmynd frá Stekkholti
Örmerki: 352206000059489
Litur: 1500 Rauður/milli- einlitt
Ræktandi: Karl Áki Sigurðsson
Eigandi: Gestüt Sunnaholt GmbH
F.: IS1998187054 Gári frá Auðsholtshjáleigu
Ff.: IS1986186055 Orri frá Þúfu
Fm.: IS1987288802 Limra frá Laugarvatni
M.: IS1996225201 Ímynd frá Reykjavík
Mf.: IS1990188176 Hrynjandi frá Hrepphólum
Mm.: IS1985286058 Venus frá Skarði
FORSKOÐUNARDÓMUR
Vorsýning á Selfossi
Mál (cm): 141 – 138 – 62 – 142 – 27,0 – 18,0
Hófa mál: V.fr.: 9,2 – V.a.: 8,1
Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 7,0 – 8,5 – 8,5 = 8,29
Hæfileikar: 8,5 – 7,5 – 7,0 – 7,5 – 8,0 – 8,0 – 8,5 = 7,89
Aðaleinkunn: 8,05      Hægt tölt: 8,5      Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Artemisia Constance Bertus

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link