Fjáröflun æskulýðsnefndar Sörla – Skipulagsdagatal

  • 29. desember 2021
  • Fréttir

Í Sörla í Hafnafirði erum við að byggja upp öflugt barna og unglingastarf. Krökkunum okkar stendur til boða að æfa hestamennsku eins og aðrar íþróttir, þau hafa aðgang að fræðslu og skemmtun sem hentar breiðum hóp iðkenda hvort sem fjöldskyldan stundar hestamennsku eða ekki. Þetta æskulýðsstarf er knúð áfram af metnaðarfullum sjálfboðaliðun og til að halda kostnaði á starfinu sem er framundan niðri eru við í fjáröflun.

Við höfum nú annað árið í röð látið hanna fyrir okkur skipulagsdagatal sem er sérstaklega fyrir hestamenn. Í dagatalið er hægt að skrá niður hvað er gert dag frá degi, hver fór á hvern hest, sett markmið og skráð skilaboð fyrir allt af 10 hesta eða notendur.

Dagatalið er prýtt afar fallegum myndum eftir Gýju Einasdóttur ljósmyndara.

Dagatalið kostar aðeins 3.500,- Sendu okkur línu á [email protected] og við verðum í sambandi með greiðsluupplýsingar og hvernig við komum dagatalinu til þín.

Með kveðju frá hestafólki framtíðarinnar

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link