Fjórðungsmót Austurlands Fjórðungsmót Austurlands byrjar í dag

  • 6. júlí 2023
  • Fréttir
Dagskrá dagsins og alls konar nytsamlegar upplýsingar fyrir gesti mótsins

Fyrsti dagur Fjórðungsmót Austurlands er í dag. Dagskráin hefst kl. 10 þegar kynbótadómar byrjar en síðan verður keppt í tölti T3 og T1.

„Fyrra holl kynbótahrossa verður í reiðdóm í kringum kl 11:30 á vellinum, gæti orðið aðeins fyrr eða seinna. Einungis ein leið er opin inn á svæðið, beygt til hægri strax eftir brúnna ef komið er Egilsstaðamegin að svæðinu og þar tekur á móti fólki miðasala. Keppendur – það er langbest að leggja kerrum við reiðhöll en muna að kaupa miða inn á svæðið fyrst. Sjoppan í félagsheimilinu verður opin í allan dag með ýmsu td. Kaffikorti fyrir kaffiþyrsta, þá þarf bara að greiða í eitt skipti í posanum og svo framvísa kortinu þegar kaffið er sótt. Pylsur, samlokur, súkkulaði og nóg af drykkjum. Matarvagninn fyrir utan verður kominn í gírinn fljótlega,“ segir í tilkynningu frá mótstjórn

Fyrir þá sem eru ekki á svæðinu er Alendis.is að sýna beint frá mótinu svo hægt er að fylgjast með gangi mála þar inni.

Ráslistar eru inn á LH kappa smáforritinu.

Dagskrá dagsins í dag:

Fimmtudagur
10.00: Kynbótadómur 1. holl
13.00: Knapafundur
14.00: Kynbótadómur 2. holl
17.00: Vallarhlé
17.15: Tölt T3 – 17 ára og yngri – Forkeppni
17.50-18.00: Vallarhlé
18.00: Tölt T3 – Áhugamenn – Forkeppni
19.00: Matarhlé
20.00: Mótsetning
20.15: Tölt T1 Forkeppni 1-11
21.00: Vallarhlé eftir 11. Hest
21.10: Tölt T1 Forkeppni 12-22. Knapi 12: Stefán Hrafnkelsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link