Fjölbreytt hliðardagsskrá
Sérstök hliðardagskrá verður í gangi á Landsmóti hestamanna og verður hún spennandi og fjölbreytt svo allir ættu að geta fundið sér afþreyingu við hæfi. Þar má nefna sýningaratriði barna/unglinga, hestateymingar og margt fleira.
Félag tamninga mun standa fyrir kennslusýningum í gamla reiðgerðinu við félagsheimili Fáks. Fjölbreytt atriði verða sýnd, með mismunandi áherslum í reiðmennsku og þjálfun. Sýningarnar munu fara fram bæði á íslensku og ensku. Sýningar sem þessar hafa verið gríðarlega vinsælar, svo þetta er skemmtileg viðbót við hefðbundna dagskrá landsmóts.
Miðvikudagskvöldið 27. júní kl. 20:00 verður farið í fjölskyldureiðtúr í nánasta umhverfi við félagssvæði Fáksmanna. Lagt verður af stað frá nýju hesthúsabyggðinni í Almannadal og farinn um það bil klukkutíma reiðtúr upp á Hólmsheiði, gegnum Rauðhólana, inn í Heiðmörk og til baka. Hestamenn eru hvattir til að fjölmenna í huggulegan reiðtúr og njóta náttúrunnar, hestanna og félagsskaparins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH