Fjórðungsmót á Vesturlandi 2021

  • 26. janúar 2021
  • Fréttir

Undirbúningsnefnd hefur gengið frá ráðningu við hinn landsþekkta Magnús Benediktsson (Magga Ben) sem framkvæmdastjóra Fjórðungsmóts Vesturlands sem haldið verður í Borgarnesi dagana 7.-11. júlí.

Til gamans má geta þess að Maggi Ben vann allar stökkkappreiðarnar á FM 1988 á Kaldármelum á hestinum Elíasi frá Hjallanesi, Valsa frá Hemlu og Lýsingi frá Brekku í 250, 350 og 800 metra stökki, og aldrei að vita nema kappinn bregði sér í hnakkinn aftur á FM 2021 🙂

Hestamenn á Vesturlandi eru komnir á fullt í undirbúningi og við hlökkum til að sjá ykkur öll á Fjórðungsmóti Vesturlands næsta sumar!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar