Fláki allur
Fláki frá Blesastöðum er allur og sjá eflaust margir eftir þessum mikla gæðing. Fláki var undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Blúndu frá Kílhrauni. Hann endaði annar á Landsmótinu í Reykjavík 2011 í A flokki gæðinga en margir voru búnir að spá honum sigri á því sama móti.
Fláki var fluttur til Þýskalands árið 2012 þar sem hann endaði sína ævidaga.
Fláki var með 8.49 í aðaleinkunn, 8.71 fyrir hæfileika og 8.17 fyrir sköpulag. Hann á 103 skráð afkvæmi og hafa þrjú hlotið fullnaðardóm. Hæst dæmda afkvæmi Fláka er Aron frá Mollegaard en hann hlaut 8.09 í aðaleinkunn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH