Fleiri námskeið með Unn Kroghen framundan
Námskeiðið Unn Kroghen á Borg í Þykkvabæ um helgina var vel heppnað og nemendur voru himinlifandi með árangur helgarinnar að er fram kemur í tilkynningu frá aðstandendum námskeiðsins.
„Unn nálgast knapann og hestinn á skemmtilegan hátt, er gríðarlega fljót að lesa bæði hest og reiðmann. Hún hefur mikla reynslu og hefur sjálf reynt nánast allt í sinni reiðmennsku. Aðferðir hennar eru á margan hátt mjög ólíkar því sem tíðkast í dag, en hún er dugleg að útskýra það sem stendur á bakvið þær og í lok námskeiðsins efast enginn um gildi þeirra. Einfaldleikinn er í fyrirrúmi, hún leggur mikið uppúr því að hesturinn sé mjúkur og léttur í munni og skilji og hlusti á knapann.
Námskeiðið í mars var fyrir löngu fullbókað og einungis eru örfá pláss laus á námskeið sem hún heldur 8.-10. apríl næstkomandi. Annað námskeið verður síðan haldið helgina 13.-15. maí. Skráning á netfangið [email protected] eða í síma 863-8813,“ segir í tilkynningunni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH