Flottar sýningar hjá börnunum
Keppni er hafin í milliriðlum í barnaflokki á þriðja degi Landsmóts. Brekkan er vel setin og greinilega mikil stemming í brekkunni en krakkarnir fá mikið klapp í lok sýninga sinna. Krakkarnir eru búin að sýna flottar sýningar og leggja sig öll fram. Eins og í b flokknum í gær hafa nokkrir krakkar lent í því að hestarnir kýrstökkvi hjá þeim. Telma Tómasdóttir var að ljúka við víga sýningu en hún byrjaði á því að hleypa af krafti en þó þannig að hesturinn skipti sér ekki og allt var vel undir stjórn. Telma kláraði síðan sýninguna á flottu tölti og allar gangskiptingar á hárréttum stað. Flott hjá stelpunni. En hún og hesturinn hennar Taktur frá Torfunesi eru efst sem stendur með einkunnina 8,48
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH