Fóðrun reiðhesta og kynning á reiðnámskeiðum – Hestamannafélagið Fákur
Í kvöld verður kynning á námskeiðahaldi Fáks í TM reiðhöllinni kl.
20.00.
Fræðslunefnd Fáks býður einnig upp á spjall við gesti um
hvernig námskeið fólk hefur áhuga á að fá inn í starfið.
Í kjölfarið mun Einar Ásgeirsson, fóðurfræðingur hjá Fóðurblöndunni
halda erindi um fóðrun reiðhesta. Gestir fá afsláttarmiða sem veitir 15
% afslátt af hestavörum Fóðurblöndunnar í einn mánuð.
Kaffi, kruðerí og að sjálfsögðu bollur í tilefni dagsins gegn vægu
gjaldi.
Enginn aðgangseyrir og öll velkomin.
Vonumst til að sjá sem flesta.
Fræðslunefnd Fáks.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH