Folaldasýning Adams

  • 25. apríl 2022
  • Fréttir

Stefanie Scheidgen og Fenrir, glæsilegasta folald sýningarinnar.

Glæsilegasta folald sýningarinnar var Fenrir frá Strönd II

Hestamannafélagið Adam í Kjós hélt folaldasýningu í Miðdal í Kjós síðastliðinn laugardag. Dómari á sýningunni var hinni kunni hestafræðingur, Magnús Lárusson, sem ásamt dómstörfum, uppfræddi gesti sýningarinnar um byggingu og þroska hestfolalda og sýndi þaulvönum hestamönnum hvernig reka skuli til folöld á slíkum sýningum.
Á sýninguna mættu með folöld sín hrossaræktendur í Kjósinni. Verðlaunað var fyrir fyrstu þrjú sæti í flokki hestfolalda og flokki merfolalda og dæmt var um glæsilegasta folald sýningarinnar í eigu félagsmanns í Adam. Margir gestir mættu á sýninguna, sem fór fram í frábærri aðstöðu hjá Miðdalshjónunum Svönu og Guðmundi.
Úrslit sýningarinnar voru þessi:

Merfolöld:
Sólbirta frá Miðdal.
Móðir: Ská frá Miðdal.
Faðir: Sólbjartur frá Flekkudal.
Eigendur og ræktendur: Svanborg Magnúsdóttir og Guðmundur Davíðsson.

Kolbrún frá Flekkudal.
Móðir: Æsa frá Flekkudal.
Faðir: Stáli frá Kjarri.
Eigandi og ræktandi: Guðný G. Ívarsdóttir.

Ísey frá Litla-Bæ.
Móðir: Glóða frá Þórukoti.
Faðir: Atli frá Efri -Fitjum.
Eigandi og ræktandi: Irena Kamp.

Hestfolöld:
Fenrir frá Strönd II.
Móðir: Glámblesa frá Strönd II..
Faðir: Blakkur frá Hvítanesi.
Eigandi: Stefanie Scheidgen
Ræktandi: Jón Gunnar Karlsson

 

Sólon frá Flekkudal.
Móðir: Tilvera frá Flekkudal.
Faðir: Sólbjartur frá Flekkudal.
Eigandi og ræktandi: Guðný G. Ívarsdóttir.

Draumur frá Flekkudal.
Móðir: Halla frá Flekkudal.
Faðir: Hrannar frá Flugumýri.
Eigandi og ræktandi: Guðný G. Ívarsdóttir.

Glæsilegasta folald sýningarinnar í eigu félgagsmanns í Adam var Fenrir frá Strönd II, sem er í eigu Stefanie Scheidgen.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link