Folaldasýning í Söðulsholti
Folaldasýning verður haldin í Söðulsholti sunnudaginn 1. mars, kl. 13 ef veður leyfir.
„Hver skráning kostar kr. 1.000 og hægt er að skrá hjá Einari í tölvupósti : [email protected]. Sýningin er öllum opin .
Gefa þarf upp nafn,folalds, lit, fæðingarstað, föður og móður, ræktanda og eiganda. Keppt verður í kynjaskiptum flokkum og svo velja gestir fallegasta folaldið. Að þessu sinni ætlum við að biðja fólk að stilla fjöldanum í hóf þannig að hver ræktandi sé ekki að koma með fleiri en 3-4 folöld.
Skráningargjaldið greiðist inn á reikning 0354-26-3970, kt. 271235-4539. Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 26. febrúar.
Aðgangseyrir er kr. 1.000 á mann, sem greiðist við inngang í reiðufé, enginn posi. Innifalið í því eru kaffiveitingar- frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Auðvitað vonumst við til að sjá sem flesta og góð hugmynd að gestir hafi með sér létta tjaldstóla til að geta hvílt lúin bein,“ segir í tilkynningu frá Söðulsholti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH