Folaldasýning í Villingaholtshreppi
Folaldasýning fyrir félagsmenn Hrossaræktarfélags Villingaholtshrepps sem vera átti sunnudaginn 22. febrúar verður haldinn þann 8. mars í reiðhöllinni á Þjórsárbakka kl. 14, samkvæmt tilkynningu frá stjórn hrossaræktarfélagsins.
„Þáttökugjald 2.000 kr. fyrir hvert folald. Þær skráningar sem borist hafa halda sér. Ef afskrá á folöld þá vinsamlegast senda tölvupóst [email protected] eða í síma hjá Atla Geir s. 898-2256. Skráningafrestur rennur út kl. 22 þann 6. mars. Koma verður fram nafn á folaldi, litur, móðir, faðir, ræktandi og eigandi.
Þeir sem verða með folöld eru beðnir um að mæta eigi síðar en kl.13.30. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin merfolöld og hestfolöld.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH