Folaldasýning á Melgerðismelum

  • 10. febrúar 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Hrossaræktarfélagið Náttfari stendur fyrir viðburðinum.

Laugardaginn 14.febrúar n.k. stendur Náttfari fyrir folaldasýningu í Melaskjóli á Melgerðismelum, að er fram kemur í tilkynningu.

„Dómari verður Eyþór Einarsson en fyrirkomulagið verður þannig að hann dæmir sköpulag folaldanna fyrir hádegi (ath.folöld þurfa að vera komin í hús kl.11:00) og eftir hádegi – kl.13:00 – verður sjálf sýningin.  Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu folöld í hryssu- og hestaflokki auk þess sem áhorfendum býðst að velja glæsilegasta folaldið.  Þá gefst færi á að skrá til leiks ungfola fædda 2012 og 2013.  Veitingasala verður í Funaborg, opið hús þar í hádeginu.

Skráning fer fram um netfangið [email protected] eða í síma 895-2598 í síðasta lagi fimmtudagskvöldið 12.febrúar.  Við skráningu skal gefa upp nafn, lit, foreldra, ræktanda og eiganda folaldsins.“

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link