Folaldasýning á sunnudag
Folaldasýningar eru nú haldnar víða um land.
Folaldasýning fyrir félagsmenn Hrossaræktarfélags Villingaholtshrepps verður haldin sunnudaginn 15. febrúar næstkomandi í reiðhöllinni á Þjórsárbakka og hefst sýning kl. 14.
„Þáttökugjald 2000 kr fyrir hvert folald. Skráning í síma hjá Atla Geir S:8982256 [email protected]. Skráningfrestur rennur út kl 22.00 13. feb. 2015. Koma verður fram nafn á folaldi, litur, móðir, faðir, ræktandi og eigandi. Þeir sem verða með folöld eru beðnir um að mæta eigi síðar en kl.13.30. Veit verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin merfolöld og hestfolöld,“ segir í tilkynningu frá stjórn hrossaræktarfélagsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH