Forsala miða á Landsmót 2011 framlengd

  • 16. maí 2011
  • Fréttir
Forsala miða á Landsmót 2011 framlengd

Gríðarlega mikið álag hefur verið á miðasölukerfi Landsmóts síðastliðna daga og hefur það orðið þess valdandi að margir hverjir hafa átt í erfiðleikum með að ganga frá greiðslu á miðum.

Því hefur verið ákveðið að framlengja forsölu aðgöngumiða á Landsmót fram til miðnættis í kvöld, mánudaginn 16.maí.

Verð á vikupassa í forsölu er 15.000kr en 12.000kr fyrir félaga í LH og BÍ. Eftir forsölu mun vikupassi kosta  18.000kr en 15.000kr fyrir félaga í LH og BÍ.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link