Forsala miða á Ræktun að hefjast
Stórsýning Hrossaræktarsamtaka Suðurlands RÆKTUN 2022 sem fram fer í Fákaseli að Ingólfshvoli laugardaginn 30. apríl n.k. kl. 20:00. Eins og verið hefur þá verður áherslan á sýningar ræktunarbúa, afkvæmasýningar hryssna og stóðhesta ásamt hópa einstaklingssýndra hryssna og stóðhesta.
Forsala aðgöngumiða hefst mánudaginn 25.apríl og verður hægt að nálgast miða í verslunum Líflands í Reykjavík og á Hvolsvelli og í Baldvin og Þorvaldi á Selfossi.
Það hefur ávallt verið þétt setið á pöllunum og því vissara að vera snemma á ferðinni og tryggja sér miða í tíma því nú stefnir í mjög glæsilega sýningu og hafa margir af allra bestu gæðingum landsins boðað komu sína.
Miðaverð er kr. 3.500. frítt fyrir 12 ára og yngri.
Þetta er í tuttugasta sinn sem þessi sýning er haldin og hafa þessar sýningar verið virkilega góðar og vel sóttar. Mörg spennandi ræktunarbú og afkvæmahópar hafa tilkynnt um þátttöku sína. Þetta er frábært tækifæri til að koma hryssum, stóðhestum, ræktun sinni og/eða afkvæmahópi á framfæri.
Hafir þú áhuga á að koma þínum hrossum á framfæri er hægt að hafa samband við sýningarstjórann Viðar Ingólfsson í síma 8670214 eða á [email protected]
Kveðja
Hrossaræktarsamtök Suðurlands
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH