„Förum ekki endilega sömu leið og flestir“
Björn og Magnea stödd á HM í Berlín árið 2019 mynd: Aðsend
Varmilækur í Skagafirði er hrossaræktarbú sem allir hestamenn þekkja en þar hefur verið stunduð markviss hrossarækt í áratugi og hafa margir frábærir gripir komið frá búinu. Ábúendur þar á bæ eru þau Björn Sveinsson og Magnea K. Guðmundsdóttir. Blaðamaður Eiðfaxa heyrði í þeim á dögunum og spurði þau nokkurra spurninga um þau, búið, fortíð og framtíð.
Er sérvitur
„Ég horfi vel í kringum mig, fer ekki endilega sömu leið og flestir enda sérvitur, ég hef það hugfast í minni ræktun að mér líki vel við forfeður og formæður stóðhestsins sem ég nota en einblíni ekki bara á einstaklinginn. Ég hef lært að þekkja mína ræktun þar sem ég hef ræktað hross í hátt í 50 ár og veit því dável hvaða stofn passar ekki í minn stofn. Ég er mjög hrifinn af því að hafa Náttfara frá Ytra Dalsgerði og Borgfjörð á bak við, þeir hafa reynast mér vel, síðan er það gæðingurinn Smári frá Skagaströnd sem litar mína hrossarækt mikið í dag. Í minni hrossarækt eru tveir stofnar, annars vegar út af Kolbrúnu frá Sauðárkróki og hins vegar Frekju frá Þórustöðum, það hefur líka reynst mér vel að blanda þeim línum saman.“ Svarar Björn þegar hann er spurður að því hvort þau aðhyllist einhverjar ákveðnar ræktunarlínur í sínu starfi.

Kolbrá frá Varmalæk er heiðursverðlaunahryssa fædd árið 1996 og er ennþá að eiga folöld, hefur átt 16 og átta þeirra komið til kynbótadóms. Mynd: Facebooksíða Varmalæk
Í beini framhaldi er best að spyrja um ræktunarhryssur bússins og undir hvað þeim var haldið síðasta sumar? „Helstu ræktunarhryssurnar eru sjö talsins og eru eftirfarandi:“
- Kolbrún (ae.8,23) hún fór undir Leyni frá Garðshorni á Þelamörk
- Kolbrá (heiðursverðlaunahryssa – ae.8,12) fór undir Glúm frá Dallandi
- Kellling (ae.8,23) fór undir Nátthrafn frá Varmalæk
- Nótt (ae. 8,16) fór undir Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum
- Kveðja (8,06) fór undir Álfaklett frá Syðri- Gegnishólum
- Tilvera (8,12) fór undir Randver frá Varmalæk, ungan Náttrafnsson
- Mirra frá Vindheimum (8,12) fór einnig undir Randver frá Varmalæk.
En er búið að ákveða hvaða stóðhesta á að nota í sumar? „Það eru svo margir góðir sem koma til greina og á eftir að ákveða það endanlega, kemur í ljós.“

Mirra frá Vindheimum er ein af ræktunarhryssum bússins en hún hefur m.a. unnið sér til frægðar að vera einn af aðalleikurunum í myndinni Hross í Oss. Á baki henni situr Björn. Mynd: Facebooksíða Varmalæk
Stefnt með hross í dóm
Aðstaðan á Varmalæk er góð með snyrtilegu og fallegu hesthúsi þar sem reiðhöll og hesthús eru í sömu byggingu. En hversu mörg hross eru þau með á húsi og hversu mörg hross eru í þeirra eigu?
„Það eru á milli 65-70 hross til hér á Varmalæk. Við sjálf erum með 11 hross á húsi sem Björn sér um að þjálfa. Við erum ánægð með hestakostinn hjá okkur, efnileg hross að finna í honum. Í vetur eins og oft áður er hestagullið Nátthrafn óneitanlega bestur í húsinu. Við erum svo með tvö hross í þjálfun hjá Líneyju Maríu og Þórarinn Eymundsson er með eitt hjá sér. Þá hafa leigt hér páss hjá okkur í vetur hörku duglegar og áhugasamar konur í hestamennsku sem eru með eigin hross og nýta aðstöðuna hjá okkur.

Nátthrafn er hæst dæmda hrossið sem komur hefur frá búinu með 8,72 í aðaleinkunn. Hann er undan Huginn frá Haga og Kolbrá frá Varmalæk.
Stefnið þið með einhver hross í sýningu og keppni og hvernig lýst ykkur á kynbótakerfið eins og það er í dag? „Já það er stefnan að mæta með hross á þann vettvang en svo á eftir að ákveða það endanlega þegar nær dregur. Okkur lýst ágætlega á kynbótakerfið, það er alltaf hægt að hafa skoðanir með eða á móti. Við treystum því góða fólki sem fer með forystuna með það að markmiði að gera betur.“
Hrossarækt og hestamennska fangar hugi margra og ef ástríðan er til staðar fer stærstur tími sólarhringsins í að hugsa, tala eða skoða hross. En hvað er það við hrossarækt sem höfðar svo til þeirra Björns og Magneu? „Að hafa frelsið sem felst í að vinna sjálfstætt við sitt helsta áhugamál. Að rækta fríða, fallega og hæfileikaríka hesta.“
„Við erum annars bara nokkuð spræk, þakklát fyrir svo margt jákvætt og gott sem er að gerast í hestamennskunni og leitum ótrauð af arftaka sem vill feta í fótspor ræktandans og taka við keflinu á Varmalæk.“ segja þau Björn og Magnea að lokum. Eiðfaxi þakkar þeim fyrir spjallið og óskar þeim áframhaldandi velgengni í leik og starfi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH