Frá hrossaræktarráðunauti varðandi kynbótamat og afkvæmahesta-

  • 15. júní 2011
  • Fréttir
Frá hrossaræktarráðunauti varðandi kynbótamat og afkvæmahesta-

Nýtt kynbótamat hefur nú litið dagsins ljós og hefur verið fært í WorldFeng. Allnokkrar breytingar hafa orðið á matinu frá síðustu keyrslu, það ætti í sjálfu sér ekki að koma á óvart miðað við þann mikla fjölda hrossa sem sýndur var á vorsýningum. Margir hafa beðið spenntir eftir að sjá hvernig þeir hestar koma út sem mögulega gætu komið til afkvæmaverðlauna á landsmóti. Niðurstaðan er eftirfarandi:

Möguleg heiðursverðlaun:
Gári, Auðsholtshjáleigu     128 stig   –  51 afkvæmi
Markús, Langholtsparti     122 stig   –   58 afkvæmi
Aron, Strandarhöfði          121 stig   –    95 afkvæmi
Hágangur, Narfastöðum    121 stig  –   53 afkvæmi
Adam, Ásmundarstöðum   120 stig  –   89 afkvæmi
 
Möguleg fyrstu verðlaun:
Arður, Brautarholti     128 stig   –    16 afkvæmi
Álfur, Selfossi             126 stig  –     29 afkvæmi
Blær, Torfunesi          125 stig  –      19 afkvæmi
Stáli, Kjarri                125 stig  –       18 afkvæmi
Vilmundur, Feti         124 stig   –  20 afkvæmi
Krákur, Blesastöðum       123 stig  –     20 afkvæmi
Gígjar, Auðsholtshjáleigu   121 stig  –  31 afkvæmi
Sólon, Skáney                    121 stig  –    19 afkvæmi
Þóroddur, Þóroddsstöðum    120 stig  –  48 afkvæmi
Þristur, Feti                         119 stig  –  45 afkvæmi
Kjarni, Þjóðólfshaga             118 stig –   18 afkvæmi
 
Ekki er vitað á þessari stundu hvort allir þessir hestar muni mæta með afkvæmahóp á landsmót að þessu sinni. Vegna undirbúnings vil ég eindregið biðja um að eigendur hestanna staðfesti við mig hið fyrsta hvort þeir ætla að mæta eður ei.
 
Með kveðju,
Guðlaugur V. Antonsson,
Hrossaræktarráðunautur BÍ.
Sími: 892-0619
Netpóstfang: [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link